Samdi við Paris Hilton og Jóhönnu Guðrúnu - myndir 12. janúar 2010 12:00 „
Gyðja var kynnt fyrir stílistanum hennar Parisar Hilton," segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Gyðju aðspurð hvernig samstarf hennar og Parisar Hilton hafi komið til og heldur áfram: „Sem bar þetta svo undir hana sjálfa. Þeim leist báðum mjög vel á og í kjölfarið valdi hún sér nokkrar týpur úr línunni." „En svo veit maður aldrei hvernig þættirnir verða klipptir þannig að það þýðir ekkert annað en að vona að Gyðju skórnir og töskur sjáist í þáttunum þegar þetta verður sýnt." „Línan var sérstaklega hugsuð fyrir hana til að klæðast í raunveruleikaþættinum sínum My Bff." „Þátturinn var tekinn upp í Dubai en sú sería væntanleg í loftið á MTV á næstunni." „Þetta gerðist allt saman mjög hratt og þurfti m.a. að láta sérframleiða á hana með hraði þar sem línan var ekki tilbúin úr framleiðslu. Svo fékk hún þetta sent upp á hótel til sín þar sem hún dvaldist í Dubai á meðan á tökum á þættinum stóð." „Ég er mjög stolt af því að eins glæsileg stúlka og hún Jóhanna veki athygli á hönnuninni." „Stílistinn hennar lét okkur svo vita að hún hafi verið í vörum frá Gyðju í einum af síðustu þáttunum í seríunni." „En svo veit maður aldrei hvernig þættirnir verða klipptir þannig að það þýðir ekkert annað en að vona að Gyðju skórnir og töskur sjáist í þáttunum þegar þetta verður sýnt." Paris Hilton fílar Gyðju skóna og veskin. „Stílistinn sagði okkur líka að Paris hafi orðið svo hrifin af Gyðju að hún hafi ákveðið að fara með vörurnar heim til að geyma í sínum einkafataskáp til að eiga möguleika á því að nota vörurnar þegar henni hentar." „En mér var síðar sagt að það gerist víst ekki oft þannig að það var virkilega ánægjulegt að fá svona jákvæð viðbrögð frá henni." Jóhann Guðrún var í þessum skóm síðasta laugardag. „Þetta er mjög spennandi og ég get ekki verið annað en rosalega ánægð með að eins mikil fyrirmynd í tískuheiminum eins og Paris Hilton er skuli hafa áhuga á Gyðju."Hvernig kom það til að Jóhanna Guðrún klæddist skóm frá þér? „Hún hafði samband við mig fyrir stuttu þar sem hún sagðist vera mjög hrifin af vörunum frá Gyðju og í kjölfarið varð úr að hún mundi klæðast skófatnaði og fylgihlutum þegar hún syngur á tónleikum og kemur fram opinberlega bæði hérlendis og eins þegar hún er stödd úti og kemur fram þar."Skoða má myndir af hönnun Sigrúnar Lilju í myndasafni.„Hún kom fram í fyrsta skipti í skóm frá Gyðju núna á laugardaginn í forkeppni Eurovision og tók sig einstaklega vel út."„Hún var eins og sannkölluð gyðja og er ég mjög stolt af því að eins glæsileg stúlka og hún Jóhanna veki athygli á hönnuninni," segir Sigrún.-elly@365.is
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Fleiri fréttir Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Sjá meira