Meintir kókaínsmyglarar áfram í gæsluvarðhaldi 30. apríl 2010 17:45
Fimm manns, fjórir karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald en þau eru grunuð um aðild á innflutningi kókaíns hingað til lands frá Spáni. Um er að ræða rúmlega 3 kg af mjög hreinu kókaíni, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. „Einn mannanna var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 7. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna og tveir til 14. maí, annar þeirra sömuleiðis vegna rannsóknarhagsmuna en hinn á grundvelli almannahagsmuna. Hinir, karl og kona, voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 28. maí á grundvelli almannahagsmuna." Þá segir að þrír karlar til viðbótar séu í haldi lögreglu vegna málsins en þeir voru í síðustu viku úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. maí á grundvelli almannahagsmuna. Konu, sem var handtekin í síðustu viku og úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald, hefur hinsvegar verið sleppt. Átta manns eru því nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn málsins. Í tilkynningunni segir að það séu lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum sem í sameiningu rannsaka málið en hafa við það notið aðstoðar embættis ríkislögreglustjóra, tollyfirvalda og Europol . Rannsóknin er nokkuð umfangsmikil en í tengslum við hana hefur lögreglan framkvæmt allmargar húsleitir en í þeim hefur verið lagt hald á umtalsverða fjármuni sem og skartgripi. Í fyrradag var farið í þrjár húsleitir til viðbótar og fimm manns færðir til skýrslutöku en sleppt að því loknu.
Tengdar fréttir Höfuðpaurs í kókaín-smygli leitað á Spáni Átta manns, sjö karlar og ein kona, sitja nú í gæsluvarðhaldi grunuð um að tengjast innflutningi á rúmlega þremur kílóum af mjög sterku kókaíni til Íslands fyrr í mánuðinum. Kókaínið kom í tveimur sendingum frá Alicante á Spáni, og vó hvor sending um 1.600 grömm. 20. apríl 2010 05:00 Dæmdur nauðgari einn þeirra sem var handtekinn í kókaínmáli Átta manns, sjö karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til vikuloka. Þau eru grunuð um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Europol rannsakar málið í samvinnu við lögregluna hér á landi. Einn hinna handteknu er Davíð Garðarsson, dæmdur nauðgari sem var á flótta undan lögreglunni í tæp tvö ár. 19. apríl 2010 12:03 Alþjóðleg rannsókn á kókaíninnflutningi Átta manns, sjö karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til vikuloka að minnsta kosti grunuð um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Europol rannsakar málið í samvinnu við lögregluna. 19. apríl 2010 10:57 Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Fleiri fréttir Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvað er sólmyrkvi? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Sjá meira
Höfuðpaurs í kókaín-smygli leitað á Spáni Átta manns, sjö karlar og ein kona, sitja nú í gæsluvarðhaldi grunuð um að tengjast innflutningi á rúmlega þremur kílóum af mjög sterku kókaíni til Íslands fyrr í mánuðinum. Kókaínið kom í tveimur sendingum frá Alicante á Spáni, og vó hvor sending um 1.600 grömm. 20. apríl 2010 05:00
Dæmdur nauðgari einn þeirra sem var handtekinn í kókaínmáli Átta manns, sjö karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til vikuloka. Þau eru grunuð um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Europol rannsakar málið í samvinnu við lögregluna hér á landi. Einn hinna handteknu er Davíð Garðarsson, dæmdur nauðgari sem var á flótta undan lögreglunni í tæp tvö ár. 19. apríl 2010 12:03
Alþjóðleg rannsókn á kókaíninnflutningi Átta manns, sjö karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til vikuloka að minnsta kosti grunuð um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Europol rannsakar málið í samvinnu við lögregluna. 19. apríl 2010 10:57