Ráðherra þverneitar færslu hringvegarins 27. október 2010 06:00 Skipulagið sem lagt var fram fól í sér að hringvegurinn til Víkur færi í gegnum jarðgöng í Reynisfjalli. Fréttablaðið/Heiða
Umhverfisráðherra hafnaði fyrr í mánuðinum hugmyndum bæjaryfirvalda í Mýrdalshreppi um nýja veglínu þjóðvegar 1 um sveitarfélagið. Það er í samræmi við tillögur Skipulagsstofnunar, sem gerði athugasemd við að ekki hafi verið gerð úttekt á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda. Í tillögu að aðalskipulagi hreppsins fyrir árin 2009 til 2025 var gert ráð fyrir að vegurinn yrði færður sunnar, allt niður að Dyrhólaósi, og þaðan í gegnum Reynishverfi, með göngum í gegnum Reynisfjall og þaðan í gegnum Víkurfjöru upp að Vík í Mýrdal. Ráðherra samþykkti aðalskipulagið að öðru leyti, en tók undir tilmæli Skipulagsstofnunar um frestun á breytingu vegalínu. Skipulagsstofnun lagði til frestun sökum formgalla, en í áliti stofnunarinnar er sett út á að ekki hafi verið upplýst um áhrif vegarins á náttúru og samfélag. Hins vegar tók ráðherra einnig tillit til þess að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti ógilti í júní ákvörðun sveitarstjórnar um tillögu að veglínu vegna vanhæfis eins af sveitarstjórnarmönnum sem stóðu að tillögunni. Í skýrslu Skipulagsstofnunar segir að fyrir utan einstaklinga hafi ýmsar stofnanir og félagasamtök gert athugasemdir við fyrirhugaða legu vegarins út frá sjónarmiðum náttúruverndar. Dyrhólaey og Dyrhólaósar eru á Náttúruminjaskrá og segir í mati Umhverfisstofnunar að vernda eigi votlendið ofan við ósinn, einkum vegna mikilvægis þess fyrir fuglalíf á staðnum. Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, segir í samtali við Fréttablaðið að þessi ákvörðun ráðherra hafi ekki komið á óvart. Hann bætir því við að mörg rök séu með því að velja veginum þessa leið, en meirihluti sveitarstjórnar hafi talið þennan kost bestan „með tilliti til umhverfissjónarmiða og landfræðilegra aðstæðna“. Ásgeir segir sveitarstjórnina ætla að halda sínu striki. „Það er vilji sveitarstjórnar að þessi veglína sé inni á skipulaginu og það verður unnið í því áfram.“ Sveitarstjórn tók málið fyrir á fundi á mánudag, en ákvað að fresta afgreiðslu skipulagsins. Þeir munu funda með lögfræðingi Sambands íslenskra sveitarfélag í dag til að fara yfir lagalega hlið málsins. Ekki er þess að vænta að vegurinn verði færður á næstunni, þar sem talsmaður Vegagerðarinnar segir enga vinnu þar í gangi varðandi breytingar á vegstæðinu. Þeir sjái ekkert þar sem kalli á breytingu á næstunni.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira