Forstjóri Barnaverndarstofu: Ánægjuleg þróun Erla Hlynsdóttir skrifar 27. október 2010 11:16
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu segir áhugavert hversu mjög kærum vegna nauðgana á börnum hefur fækkað milli ára. „Það er vissulega ástæða til að gleðjast ef þarna er um raunverulega fækkun að ræða," segir hann. Að mati Braga er fækkunin svo mikil að honum þykir líklegra en hitt að þarna hafi átt sér stað raunveruleg fækkun broga. „Þetta er ánægjulegur viðsnúningur frá síðustu árum þar sem málum hefur fjölgað ár frá ári," segir hann. Vísir sagði frá því fyrr í dag að átta kærur bárust lögreglunni fyrstu níu mánuði ársins vegna nauðgana á börnum. Á sama tíma í fyrra voru kærurnar 32 og árið þar á undan 26.Ánægjulegur viðsnúningur. Samkvæmt gögnum Barnaverndarstofu hefur orðið lítil fækkun á tilkynningum um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á milli ára. Þannig bárust 223 tilkynningar til Barnaverndarstofu vegna gruns um kynferðisofbeldi á fyrstu sex mánuðum ársins í ár en 223 á fyrstu sex mánuðum síðasta árs, eða 4,5 prósent af heildarfjölda tilkynninga til Barnaverndarstofu. Bragi bendir á að þarna séu teknar til allar tilkynningar þar sem grunur leikur á slíku ofbeldi. Barnaverndarstofa tekur allar ábendingar til skoðunar en aðeins lítill hluti þeirra leiðir til þess að mál eru kærð til lögreglu. Miðað við hversu mikil fækkun er á kærum til lögreglu á milli ára finnst Braga heldur líklegt að um raunfækkun brota sé að ræða sem sé ánægjulegur viðsnúningur frá þróun síðustu ára þar sem málunum hefur heldur fjölgað.Evrópuráðið horfir til Íslands Bragi telur að öflugt forvarnarstarf gegn kynferðisofbeldi hér á landi sé nú loks að skila sér. Starfsemi Barnahúss hefur þótt til fyrirmyndar þegar kemur að þessum málaflokki. Þannig segir aðstoðarframkvæmdastjóri Evrópuráðsins, Maud de Boer-Buquicchio, í nýlegu viðtali að henni þyki mikið til Barnahússins koma og hvetur aðildarríki til að líta til þess hvernig unnið er að kynferðisbrotamálum gegn börnum á Íslandi þegar kemur að því að byggja upp barnvænt réttarkerfi.Barnahús til fyrirmyndar Evrópuráðið undirbýr nú herferð til að auka samfélagsvitund í aðildarríkjunum um vernd barna gegn kynferðisofbeldi. Markmiðið er að vekja almenning, ekki síst foreldra, til vitundar um þá hættu sem steðjar að börnum í þessum efnum og sífellt tekur á sig nýjar myndir. Með þessum aðgerðum hvetur Evrópuráðið jafnframt stjórnvöld hvers aðildarríkis til að fullgilda og hrinda í framkvæmd nýjum sáttmála Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misbeitingu og kynferðisofbeldi. Ísland hefur enn ekki fullgilt sáttmálann en undirbúningur að því er á vegum dómsmálaráðuneytis. Sáttmálinn hefur meðal annars að geyma þá hugmyndafræði sem íslenska Barnahúsið byggir á, að rannsókn mála fari fram í barnvænlegu umhverfi og að ólíkar stofnanir sem vinni að úrlausn mála vinni saman til þess að sem best verði komið til móts við þarfir barnsins.
Tengdar fréttir Barnaníð: Kærum fækkar gríðarlega Mun færri kærur hafa borist lögreglunni vegna nauðgana á börnum það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum ársins bárust embættinu átta kærur vegna nauðgana á börnum undir fimmtán ára en í lok september á síðasta ári voru kærurnar 32. Fyrstu níu mánuði ársins þar á undan voru kærurnar 26. Þetta kemur fram í samantekt Ríkislögreglustjóra og eru þar teknar tölur af landinu öllu. 27. október 2010 10:57 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Fagna „heimkomu“ Baldurs eftir margra vikna fjarveru Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira
Barnaníð: Kærum fækkar gríðarlega Mun færri kærur hafa borist lögreglunni vegna nauðgana á börnum það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum ársins bárust embættinu átta kærur vegna nauðgana á börnum undir fimmtán ára en í lok september á síðasta ári voru kærurnar 32. Fyrstu níu mánuði ársins þar á undan voru kærurnar 26. Þetta kemur fram í samantekt Ríkislögreglustjóra og eru þar teknar tölur af landinu öllu. 27. október 2010 10:57