Áfram ódýrt þrátt fyrir gjaldskrárhækkanir 4. desember 2010 12:22
Þrátt fyrir skatta- og gjaldskrárhækkanir Reykjavíkurborgar er hvergi ódýrara á höfuðborgarsvæðinu að vista barn á frístundaheimili, systkinaafsláttur á leikskóla er mestur í Reykjavík og lóðarleiga lægst. Þá er nær helmingi dýrara að setja barn á leikskóla á Seltjarnarnesi en í Reykjavík. Þetta kemur fram í tölum sem fréttastofa fékk innan úr borgarkerfinu. Hugmyndum meirihluta Besta flokks og Samfylkingar um að hækka skatta og gjaldskrár var ekki tekið fagnandi þegar þær birtust fólki í vikunni. Útsvar verður á næsta ári hækkað í 13,2%, fasteignaskattar hækkaðir, sömuleiðis lóðarleiga, leikskólagjöld, sorphirðugjöld, vistun á frístundaheimili hækkar um 20% og svo mætti áfram telja. Sjálfstæðismenn í minnihlutanum sögðu þessa fjárhagsáætlun þýða allt að 150 þúsund króna útgjaldaaukningu á ári fyrir fjögurra manna fjölskyldu í borginni - meirihlutinn hins vegar telur útgjöldin aukast hjá kjarnafjölskyldunni um 50 þúsund krónur eða þar um kring. En samkvæmt áðurnefndum samanburðartölum frá borginni kemur í ljós að því fer fjarri að dýrast verði að vera þegn í Reykjavík hér á suðvesturhorninu á næsta ári. Í tölunum eru borin saman gjöld hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þrátt fyrir þessar hækkanir hjá borginni - er útsvarið langhæst í hinu hrjáða sveitarfélagi Álftaness en bæði Kópavogur, Hafnarfjörður og Reykjanesbær innheimta hærra útsvar en Reykjavík. Fasteignaskattar eru líka langhæstir á Álftanesi, 0,4% en verða 0,225% í Reykjavík á næsta ári. Lóðarleiga er langlægst í Reykjavík og er raunar níu sinnum hærri í Reykjanesbæ. Þá er systkinaafsláttur á leikskólum langmestur í Reykjavík, eða 75% - en 50 og 30% hjá nágrannasveitarfélögum. Skólamatur í grunnskóla er dýrastur fyrir foreldra á Seltjarnarnesi og fimm daga vistun á frístundaheimili verður, þrátt fyrir 20% hækkun, lægst í Reykjavík, rúmar 10 þúsund krónur miðað við rúmar 17 þúsund á Álftanesi.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira