María Sigrún: Skemmtilegasta verkefni sem ég hef unnið Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. desember 2010 14:31 María Sigrún, ásamt Guðmundi, Reyni Pétri og Hanný Maríu. Mynd/ valli.
Göngugarpurinn Reynir Pétur Ingvarsson, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður og Guðmundur Berkvist kvikmyndatökumaður forsýndu nýja mynd sína í Bíó Paradís í gær. Myndin er frásögn af Reyni Pétri á Sólheimum í Grímsnesi og frægri gönguferð hans hringinn í kringum landið fyrir 25 árum síðan. Ekki stendur til að sýna myndina aftur í kvikmyndahúsi en hún verður sýnd í Sjónvarpinu. „Þetta er eiginlega skemmtilegasta verkefni sem ég hef unnið," segir María Sigrún í samtali við Vísi. Reynir Pétur sé einstakur maður og skemmtilegur í viðkynningu. María minnir á að gönguferð Reynis Péturs hafi vakið gríðarlega athygli á sínum tíma og hafi orðið til þess að breyta ímynd og vekja athygli á málstað fatlaðs fólks. „Ég man svo vel eftir þessu," segir María sem var sjálf sex ára þegar að Reynir Pétur vann afrek sitt. Þótt Reynir Pétur sé núna orðinn 62 ára gamall segir María að hann sé ennþá mjög ern. Hann búi líka yfir hæfileikum og þekkingu sem flesta aðra skorti. Til dæmis kunni hann flest latnesk heiti á plöntum og svo kunni hann líka mjög mikið fyrir sér í stærðfræði. María segir líka að Reynir Pétur sé mjög ötull starfsmaður í gróðurhúsinu þar sem hann vinnur og að hann vinni oft á við tvo eða þrjá. María segir að frumsýningin í gær hafi verið fjölsótt. Um 60 manns hafi komið frá Sólheimum í rútu. Þar á meðal var Hanný María, unnusta Reynis Péturs, en þau hafa verið saman í 26 ár. Myndin verður sýnd á sunnudag klukkan 20.10.
Mest lesið Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Fleiri fréttir Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Karlarnir leiða að ósk kvennanna Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Sjá meira