Innlent

Fjármögnun nýs Landspítala kallar á útboð innan EES

Fjármögnun byggingar nýs Landspítala er hluti af alútboði sem fara þarf fram á Evrópska efnahagssvæðinu vegna verkefnisins.

Nýtt opinbert hlutafélag tók við umsjón með byggingu sjúkrahússins um síðustu mánaðamót. Í upphafi vikunnar hófust viðræður milli félagsins og SPITAL-hópsins sem var sigurvegari samkeppni um hönnun sjúkrahúsbyggingarinnar. Stefnt er að því að niðurstaða fáist í þær viðræður í byrjun ágúst, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Um tuttugu íslenskir lífeyrissjóðir gáfu í fyrra sameiginlega viljayfirlýsingu um þátttöku í fjármögnun spítalabyggingarinnar.

Þrátt fyrir það liggur ekki formlega fyrir hvort af þátttöku þeirra verður og hvernig henni verður þá háttað. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, sem hefur umsjón með aðkomu lífeyrissjóðanna að málinu, segir að vegna EES-reglna hafi alltaf legið fyrir að bjóða þyrfti út fjármögnunina vegna EES-reglna. Fyrst að því loknu skýrist hvernig aðkomu lífeyrissjóðanna verður háttað. Ekki sé útilokað að verktaki vilji sjálfur annast fjármögnun á framkvæmdatíma. Lífeyrissjóðirnir hafa hins vegar þegar skuldbundið sig til að taka þátt í fjármögnun um þriggja milljarða króna kostnaðar við hönnun og undirbúningsframkvæmdir. Einnig hafa þeir mikinn áhuga á þátttöku í langtímafjármögnun, þ.e.a.s. 40 ára leigu ríkissjóðs á fullbúnu sjúkrahúsinu að loknum framkvæmdum.

Þorbjörn segir að ef undirbúningur verksins gangi vel megi reikna með því að undirbúningi ljúki og útboð heildarframkvæmda geti farið fram um mitt næsta ár. Framkvæmdir geti þá hafist seinni hluta næsta árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×