TF-SIF sinnir mengunareftirliti á Mexíkóflóa 14. júlí 2010 17:50
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF hélt í morgun til Houma í Louisiana þar sem flugvélin mun næstu fjórar vikur eða til 15. ágúst, sinna mengunareftirliti á Mexíkóflóa fyrir BP- British Petroleum. Bandaríska strandgæslan hefur yfirumsjón með framkvæmd verkefnisins en TF-SIF leysir af flugvél samgöngustofnunar Kanada, Transport Canada við verkið. Sú flugvél er sömu tegundar og TF-SIF en þær eru báðar útbúnar öflugum hliðarradar „Side-looking airborne radar" (SLAR) sem er sérhannaður fyrir mengunareftirlit. Verkefni TF-SIF felst í að kortleggja olíumengun á svæðinu suður af New Orleans og verður áhersla lögð á að meta hvar olían er í hreinsanlegu magni, segir í tilkynningu. Öll gögn frá TF-SIF verða send sameiginlegri vettvangsstjórnstöð BP og US Coastguard, þar sem fulltrúi Landhelgisgæslunnar verður staðsettur. Daglega eru haldnir fundir þar sem farið er yfir stöðuna og næstu skref ákveðin en í stjórnstöðinni starfa á annað hundrað manns frá ýmsum löndum og stofnunum. TF-SIF fylgja sjö starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem verða á staðnum tvær vikur í senn. Fjórir eru í áhöfn vélarinnar. Með þeim í för verða flugvirki og flugumsjónarmaður. Sem fyrr segir verður einn starfsmaður Landhelgisgæslunnar staðsettur í sameiginlegri vettvangsstjórnstöð í Houma. Reiknað er með að í hverju flugi verði einn starfsmaður frá bandarísku strandgæslunni. Áætlað er að flogið verði 5-6 daga í viku, samtals rúmlega 100 flugtíma. Aðstoð og þátttaka Landhelgisgæslunnar sýnir að þegar stórslys verða þurfa þjóðir, jafnt litlar sem stórar, á aðstoð að halda. Landhelgisgæslan er stolt af að geta orðið bandarísku strandgæslunni og BP að liði í þessu stóra verkefni. Jafnframt mun Landhelgisgæslan og starfsmenn hennar fá mjög mikla reynslu á sviði mengunareftirlits og auðlindavörslu með þátttöku í starfi þessu. Fær Landhelgisgæslan greiddan útlagðan kostnað, launakostnað og leigu fyrir flugvélina. Á meðan TF SIF er í verkefnum erlendis mun Landhelgisgæslan hafa aðgang að flugvél Mýflugs, TF FMS, til leitar- og eftirlitsstarfa. Sú flugvél er með búnað til að greina skip ( AIS búnað) og ágæta útsýnisglugga til leitar en er hins vegar með einfaldan og almennan radarbúnað. Hefur sú vél áður verið notuð í fjarveru eða sem viðbót við flugvél Landhelgisgæslunnar.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira