Innlent

Jón Ásgeir fékk lán frá Danmörku fyrir snekkju

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Lítill danskur banki, með höfuðstöðvar í Skive á Jótlandi, lánaði Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, fyrrum forstjóra Baugs, 4,5 milljónir evra til að kaupa lúxussnekkju, segir í frétt hins danska Berlingske Tidende.

Bankinn er með veð í snekkjunni, sem er til sölu fyrir 3,3 milljónir evra.

Snekkjan er 94 fet og er 2003 árgerð.

Þetta er ekki eina snekkjan sem Jón Ásgeir fékk lán til að kaupa. Berlinske segir að talið sé að hann hafi fengið lán frá Kaupþingi í Lúxemborg, nú Banque Haviland, til að kaupa 144 feta snekkju, sem heitir One O One og er árgerð 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×