Nýjar tölur um samdrátt áfall 7. september 2010 18:18
Atvinnulífið sendi frá sér ákall í dag og krefst þess að ríkisstjórnin grípi til aðgerða sem greiði götu fjárfestingar. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir nýlegar tölur um samdrátt í þjóðarbúskapnum áfall. Forsætisráðherra flutti munnlega skýrslu um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar við upphaf þingfundar í síðustu viku. Í máli hennar kom fram að helstu hagvísar bentu til þess að algjör viðsnúningur hafi orðið í íslensku efnahagslífi og full ástæða væri til bjartsýni. Daginn eftir birti Hagstofan nýjar tölur, sem sýndu að enn er mikill samdráttur í þjóðarbúskapnum. Í ályktun sem framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins sendi frá sér í dag er kallað eftir neyðarviðbrögðum af hálfu stjórnvalda. „Við köllum eftir því að stjórnvöld taki þessar tölur allar saman alvarlega og það sé gert það sem þarf að gera til þess að spýta í lófa og láta fjárfestingarnar ganga fram," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. SA benda á að landsframleiðsla hafi minnkað um 7% milli fyrri árshelminga 2009 og 2010. Á sama tíma atvinnuleysi hafi lítið breyst. „Og framleiðniminnkun af þessu tagi eru hreint áfall og þess vegna köllum við stíft eftir því að nú sé í alvöru farið í að auka fjárfestingar á Íslandi," segir Vilhjálmur. Samtökin benda í því samhengi á stór fjárfestingaverkefni í atvinnulífinu, álverið í Helguvík og Straumsvík og opinberar framkvæmdir, svo sem vegaframkvæmdir. Þá sé nauðsynlegt að lítil og meðalstór fyrirtæki sjái sér hag í að fjárfesta, en til þess þurfi skattalækkanir og lægri vexti. Hagfræðingur ASÍ segir að veturinn framundan verði erfiður. „Í dag eru yfir 13.000 manns á atvinnuleysisskrá og þetta er hlutur sem við verðum að taka á," segir Ólafur Darri Andrason. Margt bendi til þess að þjóðarbúið sé á réttri leið, en gríðarlega mikið verk sé þó óunnið. „Og það er hlutur sem menn verða að ná breiðri samstöðu um, hvernig ætlum við að vinna okkur út úr því, hvernig getum við komist í það að byggja upp lífskjör. Það er hætta á því að við festumst í stöðnun og doða og það er hlutur sem við verðum að vinna gegn með öllum mögulegum ráðum," segir Ólafur Darri.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Sjá meira