Innlent

Anna Sigrún aðstoðar Guðbjart

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Anna Sigrún Baldursdóttir ætlar að vera Guðbjarti til halds og trausts. Fréttablaðið/ Guðmundur
Anna Sigrún Baldursdóttir ætlar að vera Guðbjarti til halds og trausts. Fréttablaðið/ Guðmundur
Guðbjartur Hannesson, ráðherra félags- og tryggingamála og heilbrigðismála, hefur ráðið Önnu Sigrúnu Baldursdóttur sem aðstoðarmann sinn. Guðbjartur segir að hún verði að mestu leyti staðsett í heilbrigðisráðuneytinu, enda sé hún hjúkrunarfræðingur að mennt. Anna Sigrún var áður aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar, þegar að hann var félags- og tryggingamálaráðherra.

Ögmundur Jónasson, nýr ráðherra í dóms- og mannréttindamálaráðuneytinu og samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu, hefur ekki ráðið sér aðstoðarmenn. Hann segir að gert sé ráð fyrir að aðstoðarmaður komi í sitthvort ráðuneytið.

Forseti Íslands skipaði Ögmund og Guðbjart ráðherra á ríkisráðsfundi á fimmtudag í síðustu viku. Báðir segja þeir að ágætlega gangi að aðlagast nýjum störfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×