Akeem vill kúbversku feðgana aftur heim Valur Grettisson skrifar 14. september 2010 19:34 Akeem Cujo-Oppong, formaður íslensku Panorama Samtakanna vill að dómsmálaráðherra beiti sér fyrir því að kúbversku feðgarnir komi aftur heim. Hörður Sveinsson „
Að flýja land er rosalega mikið," segir Akeem Cujo-Oppong, formaður íslensku Panorama Samtakanna, um ofsóknirnar gagnvart kúbversku feðgunum sem hafa flúið land. Jón Hilmar Hallgrímsson situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins sem kom upp síðustu helgi. Lögreglan hefur sagt að hann sé grunaður um kynþáttahatur, ofsóknir og skemmdarverk á heimili feðganna. Akeem segir málið koma sér á óvart. Hann segist ekki kannast við annað eins dæmi hér á landi en áréttar að samtökin hafi þó oft þurft að berjast við fordóma í ýmsum birtingamyndum. „Nú ætlum við að leggja áherslu á gönguna frá Hallgrímskirkju á laugardaginn," segir Akeem en RÚV greindi frá því í kvöld að Besti flokkurinn hefði efnt til stuðningsgöngu við feðganna á laugardaginn næsta. Gengið verður frá Hallgrímskirkju klukkan tvö niður á Ingólfstorg þar sem tónleikar verða haldnir gegn fordómum á Íslandi. Aðspurður hvort stuðningur borgarstjórnar sé mikilvægur fyrir málefnið segir Akeem svo vera. Akeem vill ennfremur að stjórnvöld leggi áherslu á að fá feðgana aftur heim. „Ég, sem formaður samtakanna, vil leggja til að yfirvöld beiti sér fyrir því að fá feðgana aftur heim," segir Akeem sem skorar á dómsmálaráðherra til þess að greiða fyrir heimkomu þeirra. Aðspurður segir Akeem að það séu fordómar á Íslandi. Akeem telur þá liggja djúpt og fæstir fordómafullir einstaklingar viðri skoðanir sínar opinberlega. Sjálfur segist hann til að mynda aldrei hafa orðið fyrir aðkasti vegna uppruna síns. Akeem segir Ísland frekar fordómalaust samfélag en eins og með öll önnur lönd leynist kynþáttahatur víða. Hann tekur sem dæmi að oft hafi einstalingar leitað til samtakanna eftir að þeim hefur verið neitað um vinnur. Oft virðist ástæðan engin önnur en upprunalegt þjóðerni einstaklinganna. Þá hafi það valdið deilum innan fjölskyldna þegar íslenskar stúlkur eða drengir kynnast maka af öðru þjóðerni. Slíkt leggst oft illa í fjölskyldurnar. „Íslendingar þurfa að gera sér grein fyrir því að þeir búa í fjölmenningarlegu samfélagi," segir Akeem en samtökin vilja koma á sérstöku námi í grunn- og framhaldsskólum þar sem fjölmenning verði beinlínis kennd til þess að sporna við fordómum. „Við getum lítið gert varðandi eldra fólk sem er fordómafullt.Við þurfum að einbeita okkur að framtíðinni," segir Akeem sem fylgist grannt með þróun sakamálsins sem viðkemur kúbversku feðgunum.Gæsluvarðhaldið yfir Jóni rennur út á föstudaginn. Enn er óvíst hvort farið verður fram á framlengingu þess.
Tengdar fréttir Nemandi við MK: Málið snýst ekkert um kynþáttafordóma Nemandi við Menntaskólann í Kópavogi segir ekkert hæft í því að kynþáttafordómar séu orsök deilna á milli nemenda við skólann og drengs af kúbversku bergi brotnu. 13. september 2010 13:17 Meinti kynþáttahatarinn áður handtekinn af sérsveit lögreglunnar Karlmaðurinn sem hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna árásar á heimili kúbverskra feðga um helgina heitir Jón Hilmar Hallgrímsson, oft kallaður Jón stóri. 13. september 2010 19:13 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira
Nemandi við MK: Málið snýst ekkert um kynþáttafordóma Nemandi við Menntaskólann í Kópavogi segir ekkert hæft í því að kynþáttafordómar séu orsök deilna á milli nemenda við skólann og drengs af kúbversku bergi brotnu. 13. september 2010 13:17
Meinti kynþáttahatarinn áður handtekinn af sérsveit lögreglunnar Karlmaðurinn sem hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna árásar á heimili kúbverskra feðga um helgina heitir Jón Hilmar Hallgrímsson, oft kallaður Jón stóri. 13. september 2010 19:13