Innlent

Miður að ekki náðist samstaða um rannsókn á einkavæðingunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir segir miður að ekki hafi náðst samkomulag um einkavæðingu bankanna.
Jóhanna Sigurðardóttir segir miður að ekki hafi náðst samkomulag um einkavæðingu bankanna.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir það miður að ekki hafi náðst meirihluti um það í skýrslu þingmannanefndar að leggja til rannsókn á einkavæðingu bankanna. Áður en þingmannanefndin lauk störfum hafði Jóhanna sagt að ef að slík tillaga kæmi ekki frá nefndinni myndi hún sjálf leggja hana fram á þinginu. Jóhanna fagnaði orðum formanna Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem sögðu á þingfundi í gær að það kæmi til greina af þeirra hálfu að slík rannsókn færi fram.

Umræða á Alþingi um skýrslu þingmannanefndarinnar hófst að nýju klukkan korter í ellefu í morgun. Jóhanna sagði í ræðu sinni að það væri gríðarlega merkilegt að þingmannanefndin hafi verið einróma um niðurstöður sínar og sátt ríkti um það hvernig ætti að bregðast við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Það væri til þess fallið að auka trú á að sátt muni ríkja um það starf sem framundan er í umbótum á íslenskum samfélagi og stjórnsýslu.

Jóhanna benti á að mikilvægt væri að vinna nauðsynlegum breytingum á stjórnsýslunni. Þegar hafi verið byrjuð vinna við það að hluta en hún myndi, sem forsætisráðherra, beita sér fyrir því að hratt og vel verði unnið að þeim tillögum sem ekki væri þegar byrjað að vinna á.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×