Innlent

Segja faðernismál Bobby Fichers verða tekið upp aftur

Óli Tynes skrifar
Bobby Fischer.
Bobby Fischer.

Breska blaðið Daily Mail segir að dómstóll á Íslandi hafi fallist á að endurupptaka mál hinnar níu ára gömlu Jinky Young sem móðirin segir að sé dóttir Bobby Fischers.

Blaðið hefur eftir lögmanni þeirrra Samuel Estimo að þær muni leggja fram frekari sönnunargögn um að Bobby sé faðirinn.

Sagt er að dómari hafi sett málið á dagskrá 6. október næstkomandi til þess að gefa mæðgunum tækifæri til að finna sér nýjan lögmann á Íslandi.

Estimo segir að hann hafi rekist á íslenska lagaklásúlu sem hefði fært þeim sigur í málinu á sínum tíma ef hún hefði verið notuð. Það hafi íslenskur lögmaður hennar ekki gert.

Vísir hefur ekki fengið þessa frétt breska blaðsins staðfesta hjá héraðsdómi.

Þess má geta að DNA sýni úr Fischer leiddi í ljós að hann væri ekki faðir Dinky. Lögmaður hennar hefur krafist þess að þessi sýni verði borin saman við sýni úr bróðursonum Fischers sem einnig gera kröfur í dánarbú hans.

Ef þau stemmi ekki hafi augljóslega verið eitthvað athugavert við sýnatökuna á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×