Amnesty hvetur Kínverja til að sleppa samviskuföngum 8. október 2010 11:55
Amnesty International hvetur kínversk stjórnvöld til að leysa alla samviskufanga í landinu úr haldi, þeirra á meðal baráttumanninn Liu Xiaobo sem fékk friðarverðlaun Nóbels í morgun. „Liu Xiaobo, sem er 54 ára fræðimaður, fékk verðlaunin fyrir framúrskarandi starf í þágu mannréttinda," segir í yfirlýsingu frá Amnesty. „Hann afplánar nú 11 ára fangelsi í kjölfar óréttlátra réttarhalda fyrir að „hvetja til undirróðurs gegn ríkisvaldinu". Liu Xiaobo hefur staðið framarlega í flokki þeirra er gagnrýnt hafa kínversk stjórnvöld og kallað eftir mannréttindavernd og lýðræðisumbótum í Kína." Samtökin segja að Liu Xiaobo sé verðugur handhafi friðarverðlauna Nóbels „og vona má að verðlaunin beini athygli að baráttunni fyrir grundvallarmannréttindum og mannréttindavernd í landinu sem Liu Xiaobo og margt annað baráttufólk í Kína vinnur að." Eykur alþjóðlegan þrýsting Þá segir að verðlaunin muni þá og því aðeins hafa raunverulegt gildi ef þau verða til að auka alþjóðlegan þrýsting á Kína að leysa Liu Xiaobo og aðra samviskufanga úr haldi, sem sitja í fangelsi fyrir það eitt að nýta sér tjáningarfrelsi sitt. Amnesty International hvetur kínversk stjórnvöld til að leysa alla samviskufanga í landinu úr haldi, þeirra á meðal baráttumanninn Liu Xiaobo sem fékk friðarverðlaun Nóbels í morgun. „Liu Xiaobo, sem er 54 ára fræðimaður, fékk verðlaunin fyrir framúrskarandi starf í þágu mannréttinda," segir í yfirlýsingu frá Amnesty. „Hann afplánar nú 11 ára fangelsi í kjölfar óréttlátra réttarhalda fyrir að „hvetja til undirróðurs gegn ríkisvaldinu". Liu Xiaobo hefur staðið framarlega í flokki þeirra er gagnrýnt hafa kínversk stjórnvöld og kallað eftir mannréttindavernd og lýðræðisumbótum í Kína." Samtökin segja að Liu Xiaobo sé verðugur handhafi friðarverðlauna Nóbels „og vona má að verðlaunin beini athygli að baráttunni fyrir grundvallarmannréttindum og mannréttindavernd í landinu sem Liu Xiaobo og margt annað baráttufólk í Kína vinnur að." Þá segir að verðlaunin muni þá og því aðeins hafa raunverulegt gildi ef þau verða til að auka alþjóðlegan þrýsting á Kína að leysa Liu Xiaobo og aðra samviskufanga úr haldi, sem sitja í fangelsi fyrir það eitt að nýta sér tjáningarfrelsi sitt. Einn höfunda Charter 08 „Liu Xiaobo er einn höfunda Charter 08 yfirlýsingarinnar, sem hvetur til lagalegra og pólitískra umbóta í Kína svo að landið verði lýðræðisríki sem virðir mannréttindi. Upphaflega undirrituðu um 300 kínverskir fræðimenn, lögfræðingar og embættismenn yfirlýsinguna sem átti að birtast á alþjóðlega mannréttindadaginn, þann 10. desember 2008. Liu Xiaobo var handtekinn þann 8. desember 2008 og yfirlýsingin birtist á netinu næsta dag. Síðan þá hafa margir þeirra sem upphaflega undirrituðu yfirlýsinguna sætt áreitni kínverskra yfirvalda. Um 12.000 manns hafa nú undirritað yfirlýsinguna á netinu," segir ennfremur. „Amnesty International hefur barist fyrir lausn hans, ásamt lausn annars baráttufólks sem skrifaði undir Charter 08, þeirra á meðal Liu Xianbin, sem var handtekinn í júní. Nokkrir þeirra sem skrifuðu undir yfirlýsinguna hafa beðið um að fá að deila ábyrgðinni með Liu Xiaobo og hópur háttsettra félaga í Kommúnistaflokknum hafa dregið í efa lögmæti dómsins yfir honum."
Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira