Hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. október 2010 12:45 Uppbygging rjúpnastofnsins gengur vel.
Boðaðar hafa verið hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski með rjúpur, segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. Verulega hefur dregið úr rjúpnaveiði á undanförnum árum enda þykir stofninn vera allt of lítill. Það breytir því ekki að margir sem hafa vanist því að borða rjúpnakjöt á jólunum eru enn sólgnir í slíkan mat. Þetta skapar forsendur fyrir svörtum markaði. Sigmar segir vissulega að það sé til staðar svartur markaður með rjúpur. „Það er einhver en það hefur frekar dregið úr því í gegnum árin, enda er komið mikið úrval af matvælum," segir Sigmar í samtali við Vísi. Hann bendir á að veiðimenn séu í mörgum fjölskyldum og borið hafi á svartamarkaðsbraski í fyrra. Sigmar segir að það sé erfitt að eiga við svartamarkaðsbraskið þegar verið sé að selja fugla innan fjölskyldunnar. „En þegar að menn eru að selja þetta opið, þá er það lögbrot samkvæmt núgildandi reglugerð," segir Sigmar. Hann segist telja að eftirlit yfirvalda með þessu hafi verið slælegt hingað til. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tilkynnti þá ákvörðun í gær að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði óbreytt frá fyrra ári. Sigmar segir að þetta þýði að um 75 þúsund fuglar verði veiddir en stofninn telur um 850 þúsund fugla. Sigmar segist vera gríðarlega sáttur við þessa ákvörðun. Hann segir að uppbygging rjúpnastofnsins undanfarin ár hafi gengið vel. Veiðar hafi verið takmarkaðar verulega. Á hinn bóginn séu fleiri þættir sem hafi áhrif á stærð rjúpnastofnsins. Til að mynda veðurfar og fjölgun rándýra. Sigmar segir að áhuginn á rjúpnaveiðum sé að aukast. Það sé meðal annars vegna þess að menn hafi meiri tíma fyrir veiðarnar nú þegar minni atvinna sé í boði. Hann segir skotveiði ekki vera svo kostnaðarsama. „Það er náttúrlega ekkert ódýrt að byrja, en vopn og klæði og annað slíkt er náttúrlega eitthvað sem að endist afar vel," segir Sigmar. Meðalveiðimaður verji um það bil 160 þúsund krónum á ári í þessa tómstund.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Sjá meira