Telja að Markarfljót hafi snúið Herjólfi 20. nóvember 2010 09:15 Frá því þessi mynd var tekin um miðjan júlí hefur rennsli Markarfljóts færst nær varnargarðinum sem sést til vinstri. Eimskip hafnar því að afhenda myndir úr öryggismyndavélum sem sýna atvikið á miðvikudag.Mynd/Óskar
Skipstjóri og rekstrarstjóri Herjólfs telja straum frá Markarfljóti líklega orsök þess að ferjan snerist á hlið fyrir utan hafnargarðinn í Landeyjahöfn á miðvikudag. Ívar Gunnlaugsson skipstjóri segir Herjólf fyrst hafa snúist á bakborða og síðan á stjórnborða rétt utan við hafnargarðinn þegar hann var að stýra ferjunni inn í Landeyjahöfn. „Ég stoppaði bara skipið og lét bógskrúfuna snúa því á rétta stefnu og hélt áfram inn,“ lýsir Ívar, sem kveður alls enga hættu hafa verið á ferð. „Ég held að það hafi ekki nokkur maður orðið var við þetta.“ Veður var gott og aðeins 1,6 metra ölduhæð þegar atvikið varð. Dýpi undir skipinu var um þrír metrar. Ívar segist áður hafa siglt þarna um í þriggja metra ölduhæð án nokkurra vandkvæða. Hann segist ekki vita hvað olli því að skipið snerist en er viss um að þar hafi verið einhverjir utanaðkomandi kraftar verið að verki. Helst detti honum í hug að straumur frá Markarfljóti hafi þyngst. „Fljótið er búið að grafa sig meðfram fjörunni og fer fyrir framan höfnina og það er eitthvað sem skrúfar sig upp fyrir framan hafnarkantinn,“ segir Ívar. Guðmundur Pedersen, rekstrarstjóri hjá Eimskipi, tekur undir með skipstjóranum. Markarfljót sé farið að renna alveg út með hafnargarðinum og mikil breyting hafi orðið á botninum. „Þetta myndar allt saman einhverjar straumiður og hnúta. Það virðist vera lykilatriði að þessi ós verði færður. Það gengur ekki að áin komi út við hafnarkjaftinn,“ segir Guðmundur og upplýsir að einmitt eigi að funda með landeigendum á mánudaginn um þá áætlun að flytja ós árinnar til austurs. Atvikið var rætt á fundi hjá Siglingastofnun á fimmtudag. Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnarsviðs, segir ekki tímabært fyrir stofnunina að gefa út álit um málið. Þess má geta að Eimskip, sem annast rekstur Herjólfs fyrir Vegagerðina, hafnar því að afhenda myndir sem til eru af atvikinu úr öryggismyndavélum í Landeyjahöfn. „Við látum aldrei neitt úr okkar öryggiskerfum nema fyrir liggi beiðni frá lögreglu,“ segir Eyþór Ólafsson, yfirmaður öryggisdeildar. Ívar skipstjóri ítrekar að fyrst og síðast líti menn til öryggis skipsins og farþeganna og taki því enga áhættu. Hann minnir hins vegar á Herjólfur sé sennilega lengri, breiðari, djúpristari og háreistari en Landeyjahöfn sé hönnuð fyrir. „Þetta er eins og að leggja í allt of lítið bílastæði. En það bjargar Herjólfi að hann er svo gott og öflugt skip.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira