Innlent

Vilja framleiða gervieldsneyti á Grundartanga

Grundartangi. Mynd úr safni.
Grundartangi. Mynd úr safni.

Japanska stórfyrirtækið Mitsubishi vill hefja framleiðslu á gervieldsneyti á Grundartanga. Umboðsaðili fyrirtækisins hér á landi segir fyrstu niðurstöður jákvæðar og nú taki við að fá fleiri aðila að borðinu.

Sagt er frá málinu í Morgunblaðinu í dag en um er að ræða framleiðslu á svokölluðu DME, gervieldsneyti. Þar er talað um að verksmiðjan geti risið á næstu fjórum árum.

Knútur Hauksson forstjóri Kletts, umboðsaðila Mitsubishi á Íslandi segir fyrirtækið áhugasamt um að reisa hér verksmiðju á Grundartanga. Hinsvegar liggi einungis fyrstu niðurstöður fyrir og þær séu jákvæðar. Þetta sé framkvæmanlegt en til þess yrði koldíosxíði frá Járnblendiverksmiðjunni á Grunartanga blandað saman við vetni.

Hann segir hugmyndina þó ekki komna á það stig að menn séu að undirbúa byggingu verksmiðjunnar.

Hann segir ennfremur að upphaflega hafi yfirmenn Mitsubishi Heavy Industry, sem hafa selt íslendingum gufuaflstúrbínur í Hellisheiðarvirkjun og víðar, komið hingað til lands og átt fundi með ráðamönnum. Þar hafi framtíðarsýn endurnýtanlegrar orku á Íslandi verið rædd og þeir hafi hrifist af þeim áformum.

Knútur segir að í byrjun næsta árs muni menn sjá hvar þessar fyrirætlanir standi, mörg ljón séu enn veginum og margt eigi eftir að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×