Tollurinn herðir eftirlit með fölskum gjöfum 15. desember 2010 12:14 Íslendingar búsettir erlendis hafa auglýst á netsíðum og boðist til að kaupa fyrir fólk hér á landi og senda varninginn hingað sem gjafir
Af hálfu tollstjóra mun eftirlit verða aukið með póstsendingum sem sagðar eru innihalda gjafir. Jafnframt mun samvinna við erlend tollyfirvöld verða aukin og þeim tilkynnt um þá aðila sem senda varning með þessum hætti til landsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Tollstjórans Hjá tollstjóra hafa menn orðið varir við að Íslendingar búsettir erlendis auglýsi á netsíðum að þeir taki að sér að annast innkaup fyrir fólk búsett hér á landi og að senda síðan varninginn hingað til lands sem gjafir. Ranglega er tilgreint á sendingunum að um gjafir sé að ræða og látið líta svo út sem engar greiðslur eigi sér stað milli aðila. Með þessu móti er reynt að komast hjá greiðslu lögboðinna aðflutningsgjalda. Í reglugerð um tollfríðindi kemur fram hvaða gjafir séu undanþegnar aðflutningsgjöldum. Eru það eingöngu tækifærisgjafir sendar af sérstöku tilefni svo sem vegna jóla, afmælis eða fermingar og miðað við að verðmæti þeirra sé ekki meira en 10.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað. Augljóst er að ofangreind þjónusta uppfyllir engan veginn þessi skilyrði enda má lesa út úr sumum auglýsingunum að þessi aðferð við innflutning varningsins sé valin beinlínis til þess að auka líkur á því að komist verði hjá greiðslu lögboðinna gjalda. Auk þess sem þessi innflutningur fer í bága við nefnda reglugerð kann hann að varða refsingu samkvæmt tollalögum. Þá kann athæfi þeirra sem senda varninginn hingað til lands einnig að vera andstæður lögum í útflutningslandinu, meðal annars. skattalögum vegna þeirra greiðslna sem þeir taka fyrir hverja sendingu. Sjá nánari upplýsingar um gjafasendingar á vef Tollstjóra.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Sjá meira