ORF leyft að rækta erfðabreytt bygg úti 15. desember 2010 05:30 Björn Lárus Örvar framkvæmdastjóri ORF.
Umhverfismál Umhverfisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Umhverfisstofnunar um að veita ORF Líftækni hf. leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi. Umhverfisstofnun veitti leyfið í júní í fyrra en sjö aðilar kærðu ákvörðunina. Sex kærum var vísað frá en ráðuneytið tók til meðferðar kæru VOR (Verndun og ræktun - félag framleiðenda í lífrænum búskap). Ráðuneytið fékk umsagnir frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands og ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur. Fjórar meginástæður voru til grundvallar kærunni hjá VOR. VOR taldi að vísindalega réttlætingu fyrir sleppingu erfðabreyttra lífvera hefði skort og Umhverfisstofnun hefði átt að kanna betur hvaða vísindalegu gagna ætti að afla með henni. Ráðuneytið fellst ekki á að skortur á vísindalegri réttlætingu geti talist ágalli við málsmeðferð Umhverfisstofnunar, þar sem hlutverk hennar sé að ganga úr skugga um að skilyrði laga séu uppfyllt. Samkvæmt lögunum er aðeins veitt leyfi til sleppingar á erfðabreyttum lífverum ef ekki er talin hætta á skaðsemi og það sé siðferðilega réttlætanlegt. Einnig taldi VOR að Umhverfisstofnun hefði sýnt alvarlegt gáleysi með því að leggja að jöfnu erfðabreyttar lyfjaplöntur og fóður- og matvælaplöntur. Alvarlegir ágallar hefðu verið á málsmeðferðinni. Það tekur ráðuneytið ekki undir. Ákvörðunin hafi verið í samræmi við lög og reglur. Þá taldi VOR fjóra nefndarmenn í ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur hafa verið vanhæfa vegna tengsla starfa þeirra við ORF Líftækni hf. Ráðuneytið komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að ekkert hafi komið fram í málinu sem styðji þær ásakanir. Að lokum taldi VOR ákvörðun Umhverfisstofnunar ekki samrýmast grundvallarreglu um sjálfbæra þróun eða varúðarreglu. Þá töldu samtökin að vanrækt hefði verið að meta efnahagsleg og samfélagsleg áhrif ræktunarinnar sem og siðferðileg álitamál. Ráðuneytið telur að við útgáfu leyfisins hafi farið fram fullnægjandi mat og ákvarðanataka verið málefnaleg og í samræmi við reglur. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira