Útgerðarfélag stefnir íslenska ríkinu 30. nóvember 2010 13:48 Rammi stefnir ríkinu vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra
Útgerðarfélagið Rammi hf. hefur stefnt íslenska ríkinu vegna þeirrar ákvörðunar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að gefa ekki út úthafsrækjukvóta á yfirstandandi fiskveiði. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi og fær flýtimeðferð. Hafrannsóknastofnun lagði til að heildarafli í úthafsrækju yrði 7.000 tonn. Jón Bjarnason ákvað hins vegar með reglugerð um miðjan júlí að úthafsrækjuveiðar yrðu gefnar frjálsar á þessu fiskveiðári. Greint er frá þessu á vef Ramma. Landssamband íslenskra útvegsmanna og einstaka útgerðir mótmæltu þessari ákvörðun ráðherra harðlega og nú hefur Rammi hf. stefnt íslenska ríkinu vegna málsins. Rammi telur lögvarða hagsmuni fyrirtækisins ríka, enda hafi það aukið heimildir sínar í úthafsrækju umtalsvert á undanförnum árum. Rammi telur meðal annars að ákvörðun Jóns Bjarnasonar um að gefa ekki út kvóta í úthafsrækju brjóti í bága við meginreglur stjórnsýsluréttar og brjóti jafnframt gegn eignarréttarákvæði sjötugustu og annarrar greinar stjórnarskrárinnar. Karl Axelsson er lögmaður Ramma í málinu og hann fagnar því að fengist hafi flýtimeðferð á málinu, enda sé brýnt að fá sem fyrst niðurstöðu í það. Karl segir að á meðan þetta ástand vari séu þær heimildir sem fyrirtækið hafi fjárfest í afar lítils virði. Þegar ofan á það bætist óvissa bæði um þetta fiskveiðiár og hugsanlega í framtíðinni sé þetta óþolandi ástand. Fréttin á vef Ramma.
Mest lesið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Fleiri fréttir Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Karlarnir leiða að ósk kvennanna Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Sjá meira