Matarkarfan hækkað um rúmar þúsund krónur á tveimur árum 30. nóvember 2010 18:55
Innfluttar vörur hafa hækkað um allt að áttatíu prósent í matarkörfu Stöðvar tvö frá því skömmu eftir bankahrun. Verð á innfluttum matvælum virðist því ekki hafa verið að fylgja styrkingu krónunnar. Lóa Pind Aldísardóttir mældi matvælavísitölu fréttastofu í dag. Við tókum slembiúrtak af seðlinum og byrjuðum á innfluttum vörum, fyrst gengi krónunnar er svipað nú og þá - og í ljósi þess að krónan hefur verið að styrkjast allt þetta ár. Það byrjar ekki vel - Hunts tómatsósan reyndist 78% dýrari í dag, Yogi detox teið hafði hækkað heldur minna, eða 34%, kílóverðið af lauk um heil 64% en Jacobs pítubrauðin hafa lækkað um átta prósent og er það fyrsta sem lækkar í matarkörfunni að þessu sinni. Ódýrasta fíkjuboxið sem við fundum hafði rokið upp í verði, um 73%, litlar innfluttar gulrætur eru nú rúmlega 50% dýrari og rauðu vínberin eru í dag 46% dýrari en skömmu eftir bankahrun. Hafi menn gert sér vonir um að innfluttar vörur færu lækkandi með styrkingu krónunnar, hafa því ekki verið bænheyrðir. En snúum okkur að innlendu vörunum. Það byrjar vel, heilsutvennan frá Lýsi hefur lækkað, um tíu prósent, en þá kemur smjörvinn sem hefur hækkað um 30%, kílóverðið af brauðosti hefur hækkað um 14% og nýmjólkin blessaða um 16%. Karfan nú kostaði 4944 krónur en fyrir tveimur árum hefði sama karfa kostað 3972 krónur. Þessi slembikarfa Stöðvar tvö í Krónunni hefur því hækkað um fjórðung síðan þjóðin stóð á kafi í miðju bankahruni.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira