Lífið

Paris Hilton tvisvar mynduð í íslenskum skóm á röltinu

Paris sést hér á vappi um götur Salt Lake City og Los Angeles í skóm frá íslenska merkinu Gyðja Collection. Hönnuðurinn Sigrún Ósk vinnur að því að markaðssetja skóna og hefur einnig samið við Kylie Minogue og Anitu Briem.
Paris sést hér á vappi um götur Salt Lake City og Los Angeles í skóm frá íslenska merkinu Gyðja Collection. Hönnuðurinn Sigrún Ósk vinnur að því að markaðssetja skóna og hefur einnig samið við Kylie Minogue og Anitu Briem.
Hótelerfinginn Paris Hilton gekk um götur Los Angeles og Salt Lake City í skóm frá Gyðju Collection í vikunni. Hönnuðurinn Sigrún Lilja fékk fréttirnar frá stílista Parisar og trúði varla sínum eigin augum þegar hún sá myndirnar. „Það var ótrúlega góð tilfinning að fá svona góðar fréttir og myndir frá stílista Parisar Hilton. Ég þurfti að nudda augun nokkrum sinnum því að þetta var svo óraunverulegt,“ segir Sigrún Lilja í Gyðju. Paris Hilton var stödd á Sun­dance-kvikmyndahátíðinni í Salt Lake City í síðustu viku. Hún var að sjálfsögðu hundelt af ljósmyndurum, sem náðu myndum af henni í íslenskum skóm frá Gyðju Collection. Hún var svo komin í aðra skó úr sömu línu í Los Angeles í vikunni þegar ljósmyndarar fylgdu henni í göngutúr með einum af hennar fjölmörgu hundum. Fréttablaðið greindi nýlega frá því að Paris hafi fengið vörur frá Gyðju og klæðst í nýrri seríu af raunveruleikaþættinum My Bff sem verður sýndur á sjónvarpsstöðinni MTV á næstunni. „Paris Hilton er að mínu mati mjög mikil fyrirmynd þegar kemur að tísku um allan heim og auðvitað er hvert hennar fótmál myndað,“ segir Sigrún Lilja. „Paris varð svo hrifin af skónum að hún ákvað að geyma vörurnar í fataskápnum sínum til að eiga möguleika á því að nota þá við hin ýmsu tilefni.“ atlifannar@frettabladid.is
WEST HOLLYWOOD, CA - FEBRUARY 02: Paris Hilton sighting at Fred Segal on February 2, 2010 in West Hollywood, California. (Photo by BuzzFoto/BuzzFoto/FilmMagic) Getty: 70054 og 58129


Skórnir Skófatnaðurinn frá Gyðju hefur vakið mikla athygli.


ARN Gyðja skór - klippa







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.