Paris Hilton tvisvar mynduð í íslenskum skóm á röltinu 5. febrúar 2010 06:00 Paris sést hér á vappi um götur Salt Lake City og Los Angeles í skóm frá íslenska merkinu Gyðja Collection. Hönnuðurinn Sigrún Ósk vinnur að því að markaðssetja skóna og hefur einnig samið við Kylie Minogue og Anitu Briem.
Hótelerfinginn Paris Hilton gekk um götur Los Angeles og Salt Lake City í skóm frá Gyðju Collection í vikunni. Hönnuðurinn Sigrún Lilja fékk fréttirnar frá stílista Parisar og trúði varla sínum eigin augum þegar hún sá myndirnar. „Það var ótrúlega góð tilfinning að fá svona góðar fréttir og myndir frá stílista Parisar Hilton. Ég þurfti að nudda augun nokkrum sinnum því að þetta var svo óraunverulegt,“ segir Sigrún Lilja í Gyðju. Paris Hilton var stödd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í Salt Lake City í síðustu viku. Hún var að sjálfsögðu hundelt af ljósmyndurum, sem náðu myndum af henni í íslenskum skóm frá Gyðju Collection. Hún var svo komin í aðra skó úr sömu línu í Los Angeles í vikunni þegar ljósmyndarar fylgdu henni í göngutúr með einum af hennar fjölmörgu hundum. Fréttablaðið greindi nýlega frá því að Paris hafi fengið vörur frá Gyðju og klæðst í nýrri seríu af raunveruleikaþættinum My Bff sem verður sýndur á sjónvarpsstöðinni MTV á næstunni. „Paris Hilton er að mínu mati mjög mikil fyrirmynd þegar kemur að tísku um allan heim og auðvitað er hvert hennar fótmál myndað,“ segir Sigrún Lilja. „Paris varð svo hrifin af skónum að hún ákvað að geyma vörurnar í fataskápnum sínum til að eiga möguleika á því að nota þá við hin ýmsu tilefni.“ atlifannar@frettabladid.is WEST HOLLYWOOD, CA - FEBRUARY 02: Paris Hilton sighting at Fred Segal on February 2, 2010 in West Hollywood, California. (Photo by BuzzFoto/BuzzFoto/FilmMagic) Getty: 70054 og 58129Skórnir Skófatnaðurinn frá Gyðju hefur vakið mikla athygli.ARN Gyðja skór - klippa
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira