Bæjarstjórar misstu af veiði í Elliðaánum 15. júlí 2010 06:30 Við Sjávarfoss í Elliðaánum. Fréttablaðið/GVA
Orkuveita Reykjavíkur nýtti ekki veiðileyfi sem frátekin voru fyrir fyrirtækið í Elliðaánum í gær heldur lét leyfin í hendurnar á Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. „Sveitarstjórum á veitusvæðinu sem Orkuveitan þjónar hefur verið boðið til veiða í Elliðaánum. Nú er bara staðan sú að það er ekki búið að ráða sveitarstjóra í sumum sveitarfélögunum og það var ákveðið að sleppa þessu þetta árið - í það minnsta," útskýrir Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar. Samkvæmt upplýsingum af skrifstofu Stangaveiðifélagsins var hinum tólf veiðileyfum gærdagsins ráðstafað til félagsmanna á biðlista sem við þetta nánast tæmdist. Þannig að ákvörðun Orkuveitunnar um að gefa frá sér veiðileyfin var kærkomin hjá Stangaveiðifélaginu. Orkuveitan á einn frátekinn dag til viðbótar í Elliðaánum í sumar. „Hinn dagurinn er frátekinn fyrir stjórn Orkuveitunnar og ég geri ráð fyrir því að hann verði nýttur. Ég á bara eftir að ræða það við stjórnina," segir Hjörleifur um ráðstöfun veiðileyfanna þann dag sem eftir stendur. Samkvæmt samningi á Orkuveitan frátekna áðurnefnda tvo daga á laxveiðitímabilinu í Elliðaánum. Reykjavíkurborg á rétt á fimm veiðidögum en var búin að ákveða fyrirfram að nýta þrjá þeirra í sumar. Tveir af þessum þremur dögum voru ætlaðir fyrir borgarfulltrúa og embættismenn. Samkvæmt ákvörðun nýs borgarstjórnarmeirhluta voru þeir hins vegar á endanum teknir undir veiðar fyrir svokallaðar samfélagshetjur sem almennir borgarar tilnefna. Fyrri dagurinn var á þriðjudag en sá síðari verður á þriðjudag í næstu viku. Þess má geta að samfélagshetjurnar lönduðu alls 33 löxum á þriðjudag. Mörgum þeirra var sleppt aftur enda má aðeins hirða tvo laxa á hvert leyfi sem gildir í hálfan dag. „Þriðji dagurinn hefur verið fyrir fyrrverandi og núverandi borgarstjóra og hann verður með hefðbundnum hætti," segir Hjörleifur Kvaran.
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Erlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Erlent Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Erlent Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Erlent Fleiri fréttir Gabríel og Anton Boama réðust á tvær konur og Anton stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Færri krakkar á samfélagsmiðlum en fleiri vingast við gervigreind Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Sjá meira