Innlent

Garðar á þaki höfuðstöðva Landsbankans

Tinni Sveinsson skrifar
Áhugavert er að skoða tillöguna, sérstaklega í ljósi þess að umrætt svæði er ennþá óbyggt og eftir á að ákveða hvernig það mun líta út í framtíðinni.
Áhugavert er að skoða tillöguna, sérstaklega í ljósi þess að umrætt svæði er ennþá óbyggt og eftir á að ákveða hvernig það mun líta út í framtíðinni. Mynd/WORKac
Arkitektastofan Work í New York birti nýlega teikningar sínar af nýjum höfuðstöðvum Landsbankans. Stofan tók þátt í samkeppni um hönnun þeirra árið 2007 og var tillaga hennar ein af fimm sem valdar voru til áframhaldandi þróunar. Líkt og margar aðrar teikningar sem gerðar voru í góðærinu verður þessi eflaust ekki að veruleika.

Aðalsmerki tillögu Work er grasi gróið þak hússins sem hækkar í þrepum upp frá Lækjartorgi og er hálfgert framhald Arnarhólsins. Ofan á þakinu var ætlunin að gera skrúðgarða þar sem fólk gæti unað sér og horft yfir miðborgina. Klæðningin utan á húsinu er síðan sögð undir áhrifum frá íslenskum vefnaði.

Áhugavert er að skoða tillöguna, sérstaklega í ljósi þess að umrætt svæði er ennþá óbyggt og eftir á að ákveða hvernig það mun líta út í framtíðinni.

Skipsstefnið svokallaða á sigurtillögu BIG og Arkiteó.

Teiknistofa Danans Bjarke Ingels, BIG, teiknaði sigurtillögu samkeppninnar með íslensku stofunni Arkiteó. Líkt og tillaga Work bendir ekkert til annars en að hún endi í sögubókunum.

Sjá má fleiri myndir af tillögunum tveimur í myndasafninu hér fyrir neðan.

Tillaga Work séð frá Arnarhóli að næturlagi. Stofan segir mynstrið á klæðningunni undir áhrifum frá íslenskum vefnaði.
Tillaga Work var ein af fimm sem valin var til áframhaldandi þróunar í samkeppni Landsbankans árið 2007.
Anddyrið eins og arkitektarnir hjá Work í New York vildu hafa það.
Eins og sést teygir húsið sig inn á Lækjartorgið.
Sigurtillagan.
Björgólfur Guðmundsson var settur á myndina af fundarherberginu í sigurtillögu BIG og Arkiteó.
Skýringamynd af byggingunni eftir arkitektana hjá Work.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×