Þjóðkirkjan hrökk í vörn 24. ágúst 2010 06:00
Karl Sigurbjörnsson biskup segir kirkjuna hafa brugðist í málefnum kvennanna þriggja sem leituðu hjálpar vegna kynferðislegrar áreitni af hendi Ólafs Skúlasonar biskups. Hann vísar því á bug að hafa reynt að þvinga konurnar til að falla frá ásökununum. Biskup segir málið snúið og auðvelt sé að vera vitur eftir á. Hann segir þjóðkirkjuna hafa brugðist og greinilegt sé að ekki hafi verið komið konunum til hjálpar. Biskup segist hafa gert sitt besta á sínum tíma til að hafa milligöngu milli kvennanna og biskups. Aðspurður hvers vegna málin hafi ekki verið tilkynnt til lögreglu segir hann að frekar ætti að beina spurningunni til kvennanna. Hann segir ásakanirnar á hendur Ólafi hafa komið sér verulega á óvart. „Ég var bara lítill sóknarprestur," segir hann. „Auðvitað vill maður ekki trúa svona. Það eru fyrstu viðbrögð allra manna að hrökkva í vörn. Vafalaust hefur kirkjan gert það í þessu máli." Biskup segir greinilegt að fjöldi fólks upplifi að kirkjan sé að bregðast hlutverki sínu gagnvart almenningi. Varðandi skriðu úrsagna úr þjóðkirkjunni á síðustu dögum segir hann það vissulega segja sína sögu og sé vísbending um alvarlega stöðu kirkjunnar. Varðandi ummæli Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, um að þagnarskylda presta gangi framar tilkynningaskyldu þeirra samkvæmt barnaverndarlögum, segir Karl mikilvægt að ítreka það að í hans huga sé það alveg á kristaltæru að prestar lúti lögum landsins og beri sérstakar skyldur til þess. Barnaverndarlögin séu æðri en lög og siðareglur einstakra embættisstétta. Geir þurfi að gera grein fyrir máli sínu og ummæli hans hafi verið afar óheppileg fyrir kirkjuna. Biskup sendi frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla á sunnudag þar sem hann meðal annars sagði Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur hafa kært Ólaf Skúlason til saksóknara á sínum tíma sem ekki hefði talið efni til að birta ákæru í málinu. Raunin er sú að Ólafur kærði konurnar þrjár til saksóknara, sem aftur mæltist til þess við hann að fella málið niður. Karl birti leiðréttingu daginn eftir og baðst afsökunar á rangfærslunum. „Þetta voru pennaglöp og fljótfærni. Vissulega stór mistök sem ég gerði og ég harma þau," segir Karl Sigurbjörnsson biskup. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Erlent Fleiri fréttir Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Sjá meira