Innlent

Fjöldi fólks hljóp á Alþjóða hjartadaginn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjöldi fólks tók þátt í hlaupinu í dag.
Fjöldi fólks tók þátt í hlaupinu í dag.
Tæplega 200 manns luku Hjartadagshlaupinu sem Hjartavernd hélt í fjórða sinn við Kópavogsvöll í dag, á Alþjóða hjartadaginn.

Sigurvegarar í 10 kílómetra hlaupinu voru Sæmundur Ólafsson sem hljóp á tímanum 40:48 mínútur og Íris Anna Skúladóttir sem lauk hlaupinu á 41:22 mínútu. Í 5 kílómetra hlaupi unnu þau Þorbergur Ingi Jónsson á 18:29 mínútum og Hrönn Guðmundsdóttir sem hljóp á 21:07 mínútu.

Hjartavernd skipulagði hlaupið í samstarfi við Hjartaheill, Neistann, Heilaheill, ÍSÍ og Kópavogsbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×