Innlent

Bankinn blés lífi í kvikmyndahúsið

Kvikmyndahúsið í Grafarvoginum sem vígt verður innan tveggja mánaða er hið glæsilegasta. Fréttablaðið/anton
Kvikmyndahúsið í Grafarvoginum sem vígt verður innan tveggja mánaða er hið glæsilegasta. Fréttablaðið/anton
Nýtt kvikmyndahús Sambíóanna opnar í Egilshöll í Grafarvogi snemma í nóvember. Nokkur ár eru síðan fyrirhugað var að opna dyr kvikmyndahússins en verkið var margsinnis lagt í salt.

Fasteignafélagið Nýsir átti Egilshöll en fór á hliðina í bankahruninu fyrir tæpum tveimur árum og stöðvuðust þá framkvæmdir. Landsbankinn tók við eignum Nýsis í fyrravor. Egilshöll er nú í eigu Regins, dótturfyrirtækis Landsbankans, sem blés nýju lífi í framkvæmdirnar. Þar á meðal lauk félagið við byggingu kvikmyndahússins.

Leiga á rekstri í öðru rými viðbyggingar Egilshallar var boðin út í ágúst og voru tilboð opnuð á fimmtudag. Reiknað er með að starfsemi í húsinu tengist öðru fremur afþreyingu bíóhússins og íþróttaiðkun.

Rekstur kvikmyndahússins var boðinn út fyrr á árinu og áttu Sambíóin hagstæðasta tilboðið. Svavar Sigþórsson, verkefnisstjóri Egilshallar, segir kvikmyndahúsið verða með þeim betri á Norðurlöndum. Salirnir eru fjórir, sýningartjöldin stærri en víða tíðkast og geta níu hundruð gestir sótt sýningar í höllinni. Gert er ráð fyrir þrjú hundruð þúsund bíógestum á ári. - jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×