Innlent

Dæmdur fyrir að hóta að skera börn lögreglumanns á háls

Mennirnir voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness.
Mennirnir voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness.

Tvítugur maður var dæmdur í sjö mánaða fangelsi meðal annars fyrir að hóta að skera börn lögreglumanns á háls.

Fjórir mánuðir af refsingu hans eru voru skilorðsbundnir.

Félagi hans var dæmdur í mánaðarlangt fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára. Hann hótaði einnig lögreglumönnum lífláti.

Mennirnir voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Mennirnir hótuðu lögreglunni í febrúar á síðasta ári en þeir eru einnig dæmdir fyrir fjölmörg fíkniefna- og umferðalagabrot sem voru framin á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×