Gjaldeyristekjurnar dafna í Dýrafirði Kristján Már Unnarsson skrifar 23. september 2010 18:05
Þrjúhundruð þúsund regnbogasilungar vaxa nú upp í sjókvíum á Dýrafirði, sem vonast er til að breytist í sex til sjöhundruð milljóna króna útflutningsverðmæti og skapi tíu störf á Þingeyri. Við siglum úr höfninni á Þingeyri í haustblíðunni en svona segja Dýrfirðingar að veðrið sé búið að vera síðustu fjóra mánuði. Hnísur leika listir sínar á firðinum en leið okkar liggur að sex sjókvíum á Haukadalsbót, á vegum fyrirtækisins Dýrfisks, sem lögmennirnir Sigurður G. Guðjónsson og Björgvin Þorsteinsson standa að. Silungurinn fær fóðrið í gegnum öfluga vatnsbyssu en fiskeldið hófst fyrir tveimur árum. Þrjúhundruð þúsund fiskar eru að vaxa upp, sem í sláturstærð verða milli 600 og 1.000 tonn. Hátt verð fæst fyrir stóran regnbogasilung um þessar mundir, um 800 krónur fyrir kílóið, og vonast Sigurður G. Guðjónsson til að milli sex og sjöhundruð milljónir króna fáist fyrir þann fisk sem nú er í kvíunum. Brynjar Gunnarsson, starfsmaður Dýrfisks, segir að 40 tonnum hafi verið slátrað í fyrrahaust sem fyrstu prufu og það hefði gengið mjög vel. Hann segir aðstæður í Dýrafirði henta vel. Fiskurinn vaxi vel, enda skilyrðin góð. Sjávarhiti í firðinum sé ennþá 10-11 gráður, og það sé mjög gott. Fyrir samfélagið fyrir vestan munar um störfin. Þrír menn starfa þegar við fóðrun og seiðaeldi, sem fram fer á Tálknafirði, og framundan er að bæta við sex til sjö störfum í vinnslu á Þingeyri.
Mest lesið Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Fleiri fréttir Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjá meira