Innlent

Sjálfstæðismenn vilja ræða önnur mál

Ragnheiður Elín (t.h) sést hér með flokkssystur sinni Unni Brá Konráðsdóttur.
Ragnheiður Elín (t.h) sést hér með flokkssystur sinni Unni Brá Konráðsdóttur. Mynd/Anton Brink
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sendi Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bréf í morgun þar ítrekuð var krafa formanns flokksins frá því í gær um að rædd verði áríðandi mál sem brenna á þjóðinni á meðan þingnefndir fjalla um þingsályktanir um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. Ásta hefur ekki svarað bréfinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Í umræðum á Alþingi í gær fór Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fram á það við forseta Alþingis að rædd yrðu önnur mál en málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum.

„Það er afar brýnt að þingið nýti tímann nú þegar málefni þau er snerta málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum eru komin í farveg og stærstur hluti þingmanna hefur ekki beina aðkomu að því nefndarstarfi," segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins í bréfinu. „Eins og formaður Sjálfstæðisflokksins nefndi í sinni ræðu í gær eru fjölmörg aðkallandi mál sem bíða umfjöllunar á Alþingi, s.s. niðurstaða Hæstaréttar í gengistryggingarmálum, niðurstaða Magma-nefndarinnar svokölluðu og dómur Héraðsdóms Reykjavíkur vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár. Mörg önnur mætti nefna eins og stöðuna í Icesave, atvinnumál og skuldavanda heimilanna."

Þá óskar Ragnheiður Elín eftir því að Ásta Ragnheiður beiti sér fyrir því að næstu dagar verði nýttir til þingfunda þar sem ofangreind mál og önnur aðkallandi fái umfjöllun. Hún vill auk þess að Ásta Ragnheiður kalli formenn þingflokka saman til fundar hið fyrsta til þess að fara yfir dagskrá þingsins næstu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×