Innlent

Upplýst um frambjóðendur í byrjun nóvember

Upplýst verður um frambjóðendur til stjórnlagaþings í byrjun nóvember.
Upplýst verður um frambjóðendur til stjórnlagaþings í byrjun nóvember. Mynd/Valgarður Gíslason
Landskjörstjórn mun upplýsa fyrir 3. nóvember næstkomandi hverjir bjóða sig fram til stjórnlagaþings en framboðsfrestur rennur út 18. október. Í tilkynningu frá dóms- og mannréttindaráðuneytinu kemur fram að þingið skuli skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum og persónukjörnum fulltrúa. Þeir sem ætla að bjóða sig fram verða að vera með minnst 30 meðmælendur en kosið verður til þingsins þann 27. nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×