Innlent

Sigmundur Ernir: Embættismenn eiga ekki að ráða

Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Sigmundur Ernir Rúnarsson. Mynd/Stefán Karlsson
„Embættismenn hafa ekki lýðræðislegt umboð og nema, að ég tel, síður hjartslátt þjóðarinnar en þingmenn. Embættismenn eiga ekki að ráða löggjöfinni. Framkvæmdavaldið má þó hafa tillögurétt að nýjum lögum. En ekki meir," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann hyggt leggja fram tillögu ásamt Pétri H. Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um aukið sjálfstæði Alþingis.

„Umbótatillögurnar sem byggðar verða á þingmannaskýrslunni verða að vera margar. Og ein þeirra er sumsé okkar Péturs um að öll lagasetning þings verði þingsins," segir Sigmundur í pistli á heimasíðu sinni.

Hann segir að nú sé meginhluti frumvarpa unninn í ráðuneytum sem framkvæmdavaldið sendir þingnefndum til yfirferðar fyrir kurteisissakir. „Þessu ber að snúa við. Allt frumkvæði lagasetningar á að koma frá þinginu sjálfu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×