Innlent

Ráðherra fagnar áhuga Reykjavíkurborgar

Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra.
Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra. Mynd/Pjetur
Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, fagnar áhuga Reykjavíkurborgar á samstarfi um útfærslu á þjónustu heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins enda sé það í samræmi við óskir hans um að heilsugæslan eigi samvinnu við borgina.

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma í fyrrdag að óska eftir viðræðum við ríkið um að taka yfir heilsugæsluna í borginni. Í tillögunni segir að Ísland sé eina ríkið á Norðurlöndum þar sem heilsugæslan sé ekki í höndum sveitarfélaga eða landshluta. Bent er á í tillögunni að heilsugæslan hafi verið færð frá sveitarfélögum til ríkisins fyrir 20 árum. Ástæðurnar hafi m.a. verið lítil sveitarfélög og bág fjárhagsstaða þeirra en nú sé uppi önnur staða segir í tillögunni. En megin hugmyndin með þessum tillöguflutningi samt sem áður að færa þjónustuna nær þeim sem hana fá.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rekur 15 heilsugæslustöðvar á 200 þúsund íbúa svæði. Níu þessara stöðva eru í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×