Betur verði hugað að umfangi og afrakstri 23. september 2010 06:30 Í stærri kannabismálum sem komið hafa á borð ákæruvaldsins hefur verið um heilu ræktunarstöðvarnar að ræða, með fullkomnum tækja- og tæknibúnaði, segir Daði Kristjánsson saksóknari.
Ríkissaksóknari hefur ritað lögreglustjórum í landinu bréf þar sem hann hvetur þá til að kynna sér nýgengna dóma í Hæstarétti þar sem refsing var þyngd yfir tveimur kannabisræktendum í átta og tólf mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu úr þriggja mánaða skilorðsbundinni fangelsisrefsingu. Í bréfinu bendir ríkissaksóknari meðal annars á að í öðru málanna hafi kannabisræktandanum einungis verið gefin að sök varsla fíkniefna og ræktun plantna án þess að það hafi verið í sölu- og dreifingarskyni. Um hafi verið að ræða 204 plöntur sem samkvæmt matsgerð geti gefið frá sér tólf kíló af maríjúana og 204 grömm af hassolíu miðað við tilteknar forsendur. Ríkissaksóknari beinir þeim tilmælum til lögreglustjóra að huga að viðeigandi gagnaöflun varðandi umfang og afrakstur slíkrar ræktunar. „Það er órökrétt að gera mikinn mun á því í refsingu hvort kannabisefni eða öðru ávana- og fíkniefni er smyglað til landsins frá erlendum framleiðanda og dreift hér á landi eða hvort framleiðsla og dreifing á efni er hjá sömu aðilum hér á landi,“ segir Daði Kristjánsson saksóknari, sem telur að Hæstiréttur hafi í nýgengnum dómum meðal annars fallist á ofangreind sjónarmið. Daði bendir á að til þyngingar þeirra hafi verið á því byggt að líta ætti til þess að mikið magn ávana- og fíkniefna kæmi úr ræktuninni og þeirrar hættu sem það hefði getað leitt til. Einnig ætti að líta til einbeitts brotavilja sakborninga. Þá hafi í öðru málinu verið upplýst að afurðir ræktunarinnar voru ætlaðar til sölu og dreifingar. „Í þeim málum sem við höfum verið að sjá undanfarið hafa þessar meðalstóru og stærri ræktanir farið fram í húsnæði sem breytt hefur verið í ræktunarstöðvar,“ segir Daði. „Oft á tíðum hefur töluvert mikið verið lagt í aðstöðu til ræktunar. Jafnvel hefur komið fram í málum að þeir sem staðið hafa að brotastarfseminni hafi komið sér upp sjálfvirkum búnaði til að stjórna vökvun plantna og ljósastýringu til að draga úr mannaferðum til og frá húsnæði þar sem ræktun hefur farið fram. Jafnframt hefur verið komið upp sérútbúnu loftræstikerfi og myndavélakerfi til að leyna starfseminni og vakta hana. Brotastarfsemin ber þess merki að vera skipulögð.“ jss@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira