Lóðin fyrir PrimaCare til reiðu 23. september 2010 05:30 Einkasjúkrahús Primacare verður í brekkunni gegnt Reykjalundi. Að meðtöldum samhliða hótelrekstri er áætlað að allt að eitt þúsund starfi við sjúkrahúsið. Fréttablaðið/GVA
Samningar um lóð í Sólvallalandi í Mosfellsbæ fyrir einkasjúkrahús og hótel PrimaCare ehf. verða undirritaðir á næstu vikum, að sögn Gunnars Ármannssonar, framkvæmdastjóra félagsins. „Þetta stendur mjög vel og er allt á fleygiferð,“ segir Gunnar sem kveður PrimaCare nú hafa fengið fyrri hluta af skýrslu sem Deloitte í New York gerði um rekstrargrundvöll einkasjúkrahússins. „Þarna eru mjög jákvæðar niðurstöður.“ Að sögn Gunnars hafa nokkrir fjárfestar hér innanlands komið að verkefninu. Nú verði hins vegar horft til erlendra fjárfesta. Margir þeirra hafi þegar sýnt verkefninu áhuga, sumir að eigin frumkvæði. Búast megi við því að erlendir aðilar verði meirihlutaeigendur í sjúkrahúsinu. „Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Ef við viljum fá erlenda fjárfestingu inn í landið þá verðum við líka að þola það að þeir sem festa sitt fé á Íslandi vilji fá arð af sínu fé og að hann muni renna úr landinu að einhverju leyti. En eftir stendur að uppbyggingin og öll atvinnusköpun verður hér á landi. Og það er kannski það sem skiptir mestu máli,“ segir Gunnar sem kveður risafyrirtækið Skanska hafa samþykkt að vera aðalverktaki í framkvæmdunum. Gunnar segir áætlað að hefja rekstur sjúkrahússins á fyrsta fjórðungi ársins 2013. Það mun sérhæfa sig í hnjá- og mjaðmaliðsaðgerðum fyrir útlenda sjúklinga, einkum frá Bandaríkjunum en einnig frá Evrópu. - gar
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sjá meira