Innlent

Tugir skattamála voru í biðstöðu vegna Jóns Ásgeirs og félaga

Tugir skattamála sem hafa verið í biðstöðu á meðan beðið var dóms í skattamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessarsonar og viðskiptafélaga hans, komast aftur á skrið í dómskerfinu eftir að Hæstiréttur hafnaði að fella niður ákæru í málinu. Fjárhæðirnar í málunum hlaupa á tugum milljóna króna.

Mál efnahagsbrotadeildar á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Tryggva Jónssyni, Kristínu Jóhannesdóttur og fjárfestingarfélaginu Gaumi þar sem ákært er fyrir brot á skattalögum hefur velkst í dómskerfinu í á annað ár. Þess hafði verið krafist að hluti ákærunnar yrði felldur niður en Hæstiréttur dæmdi í gær að svo yrði ekki.

Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar, segir að beðið hafi verið eftir niðurstöðu í málinu til að fara af stað með önnur skattamál þar sem svipuð álitamál koma fyrir. Því hafi í raun verið um prófmál að ræða.

„Það hefa verið í pípunum tugir mála sem þetta hefði getað haft áhrif á. Það liggur þá ljósar fyrir með meðferð þeirra og gefur okkur tækifæri til þess að halda áfram með þau," segir Helgi Magnús. Þau hafi verið í biðstöðu frá því í vor.

Magnús Helgi segir að uppi á síðkastið hafi málin orðið flóknari. „Það er lítið um hrein vanskilamál en fjárhæðirnar eru náttúrulega mismunandi. Þær eru frá nokkrum milljónum upp í tugi milljóna."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×