Nær allir útrásavíkingarnir hafa flutt lögheimili sitt til útlanda Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 14. apríl 2010 20:13 Björgólfur Thor Björgólfsson hefur lengi verið búsettur í Bretlandi.
Nær allir útrásarvíkingarnir hafa flutt lögheimili sitt til útlanda. Aðeins þrír af stærstu leikendunum í viðskiptalífinu fyrir bankahrun eru með lögheimili sitt skráð á Íslandi. Vegna þessa verða sakamál þyngri í vöfum og seinlegri auk þess sem innheimtuaðgerðir verða erfiðari segir lögmaður. Það er ekki nýmæli að áberandi menn í viðskiptalífinu flytji lögheimili sitt til útlanda. Sumir hafa verið með lögheimili í útlöndum um árabil, aðrir hafa flutt það út á þessu ári. Við skulum líta á hvar helstu leikendur í viðskiptalífinu fyrir hrun eru búsettir í dag. Við byrjum á Bretlandi sem virðist vera ákjósanlegur staður í augum víkinganna, amk hvað varðar lögheimili. Meðal þeirra sem flutt hafa lögheimili sitt þangað eru: Pálmi Haraldsson, hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir. Fyrrum viðskiptafélagi þeirra Magnús Ármann. Fyrrverandi FL Group forstjórinn Hannes Smárason og fyrrverandi forstjóri Glitnis Lárus Welding. Bakkabræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, Singer &Friedlander forstjórinn fyrrverandi Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings Sigurður Einarsson. Björgólfur Thor Björgólfsson og Steingrímur Wernersson, kenndur við Milestone. Ólafur Ólafsson sem jafnan er kenndur við Samskip auk þess sem hann er eigandi Kjalars sem var einn af stærstu hluthöfum Kaupþings er skráður með lögheimili í Bretlandi. Hann er þó búsettur í Sviss. Í Kanada er fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson, með lögheimili og í Lettlandi Jón Helgi Guðmundsson sem kenndur er við Byko. Í Lúxemborg eru báðir fyrrverandi forstjórar Kaupþings með skráð lögheimili, þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Ingólfur Helgason. Auk þeirra er einn stærsti skuldari Kaupþings, Skúli Þorvaldsson, skráður til heimilis þar. Magnús Þorsteinsson, sem myndaði þrenningu með Björgólfsfeðgum í Samson hópnum sem keypti Landsbankann, er með lögheimili í Rússlandi. Magnús hefur verið lýstur gjaldþrota hér á landi. Aðeins þrír af mest áberandi mönnunum í viðskiptalífinu fyrir hrun eru skráð lögheimili hér á landi. Þeir eru Björgólfur Guðmundsson, Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans og Karl Wernersson, Milestone maður og fyrrverandi stjórnarformaður Sjóvár. Hefur sú staðreynd að bróðurparturinn af þeim sem eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara og skattinum séu búsettir erlendis, áhrif hvort að réttvísin nái fram að ganga verði niðurstaðan sú að þeir hafi brotið lög? Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður, segir þetta hafa lítil áhrif á rannsókn sakamála önnur en að þau verði þyngri í vöfum og seinlegri. Í versta falli verði hægt að krefjast framsals. Þá bendir Sveinn Andri á að þegar menn séu komnir með lögheimili í öðru landi gildi ekki um þá þær gjaldþrotaskiptareglur sem eru við lýði hér á landi. Þá verði að beita gjaldþrotaskiptaúrræðum sem eru í landinu þar sem viðkomandi er með lögheimili.
Mest lesið Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Innlent „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Innlent Vill breyta nafni Viðreisnar Innlent Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Innlent „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Innlent Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Erlent Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna Innlent Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Erlent Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Erlent Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Innlent Fleiri fréttir Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Vill að „guð“ taki á þeim sem vilja ekki fækka sveitarstjórnarmönnum Býður Sólveigu á fundinn og kannast ekkert við Virðingu Sjá meira