Klúrasta bók allra tíma frá Evu norn 21. janúar 2010 02:00 samstarfsverkefni Eva vann bókina með ljósmyndaranum Ingólfi Júlíussyni. „
Ég veit alveg að það verða margir sem hneykslast á því sem ég leyfi mér að segja í bókinni. Það er allt í lagi. Fólk má alveg hneykslast,“ segir Eva Hauksdóttir, betur þekkt sem Eva norn. Eva sendir frá sér bókina Ekki lita út fyrir á næstunni, en verið er að ganga frá lausum endum í sambandi við útgáfuna. Eva segir að bókin verði klúrasta bók allra tíma, en ekki endilega vegna þess að hún sé klámfengin. „Hún er bara svo blygðunarlaus,“ segir hún. „Ljósmyndirnar eru til dæmis ekki fegraðar. Hrukkur og lærapokar eru ekki tekin í burtu og það er náttúrlega bara ógeð.“ Um 60 ljósmyndir prýða bókina, en þær voru teknar af Ingólfi Júlíussyni, samstarfsmanni Evu. Eva er ófeimin á myndunum og situr meðal annars fyrir nakin. „Þetta er mjög nakin og umbúðalaus bók. En þetta er ekki Hustler eða neitt svoleiðis,“ útskýrir hún. Texti bókarinnar er unninn upp úr vefsíðu Evu og segir hún að mörkin milli skáldskapar og sannleika sé oft óljós. „Ég kalla þetta sýndarraunsæi. Ég er voða mikið að leika mér að mörkunum milli skáldskapar og ævisögu og reyni að má þau út.“ Eva var talsvert í sviðsljósi fjölmiðla í búsáhaldabyltingunni sem átti sér stað í kjölfar efnahagshrunsins. Hún var ein af þeim sem Helgi Felixson fjallaði um í myndinni Guð blessi Ísland og er nú búsett í Danmörku. Eva býst við að efni bókarinnar eigi eftir að hneyksla marga. „Ég þyki öfgafull. Ég tek það ekki nærri mér, það þarf að vera til fólk í samfélaginu sem segir það sem aðrir láta sér nægja að hugsa og gerir það sem aðrir láta sér nægja að tala um,“ segir hún. - afb
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Lífið Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Britney farin í meðferð Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira