Selur listaverk fyrir íbúa Haítí 21. janúar 2010 03:00 Guðmundur Rúnar Lúðvíksson Listamaðurinn er að skipuleggja myndlistarsýningu þar sem allur ágóðinn rennur til fórnarlamba skjálftans á Haítí. mynd/spessi
Listamaðurinn Guðmundur Rúnar Lúðvíksson er að skipuleggja myndlistarsýningu þar sem allur ágóðinn rennur til fórnarlamba jarðskjálftans á Haítí. „Þetta gengur út á að smala sem flestum saman og að hver þeirra gefi eitt verk sem er verðmetið á 60 til 600 þúsund en selt á 15 þúsund kall," segir Guðmundur Rúnar. Hann er þessa dagana að kynna verkefnið fyrir kollegum sínum og vonast eftir góðum undirtektum. „Mér finnst við ekki getað verið undanskildir þessu hjálparstarfi. Tónlistarmenn eru að taka að sér hluti og fólkið í landinu líka. Mér finnst við eigum að taka þátt í svona verkefni, að skapa betri heim," segir Guðmundur. Spurður hvort listamenn séu tilbúnir til að selja rándýr verk sín á fimmtán þúsund krónur segir hann að málið snúist ekki um það. „Ég hugsa að ég myndi sjálfur láta verk, sem ég er að selja á 700 þúsund, fara. Þetta er spurning um hvers virði 15 þúsund kallinn sé. Hann er 300-400 þúsund króna virði úti á Haítí." Guðmundur fékk hugmyndina að verkefninu eftir að hafa frétt af sams konar verkefnum úti í heimi. Hann hvetur alla listamenn sem vettlingi geta valdið að taka þátt en nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu hans 1og8.com. - fb
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Fleiri fréttir Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið Sjá meira