Aukið og grófara ofbeldi gegn lögreglu 28. júní 2010 06:00 Lögreglumaður slasaðist alvarlega þegar ráðist var á hann á Kirkjusandi í kjölfar mótmæla vörubílstjóra.fréttablaðið/daníel
Bótagreiðslur til lögreglumanna við skyldustörf, sem borgarar hafa ráðist á og slasað, hafa náð nýjum hæðum á síðustu árum. Það sýnir að ofbeldi gegn lögreglu hefur farið harðnandi. Fjöldi mála af þessu tagi í málaskrám lögreglu milli ára segir einnig sína sögu. Málunum hefur farið fjölgandi. Þá hafa hótanir í garð lögreglumanna orðið grófari. Þær beinast nú ekki einungis að lögreglumönnunum sjálfum heldur hafa einnig komið upp mál þar sem borgarar hafa hótað þeim að lífláta börn þeirra, eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu. Gylfi Thorlacius hæstaréttarlögmaður sem farið hefur með fjölmörg mál fyrir lögreglumenn sem ráðist hefur verið á við skyldustörf segir að bótafjárhæðir geti numið frá nokkrum tugum þúsunda, þegar um minni háttar mál sé að ræða, og allt upp í átta til níu milljónir króna, skaðist lögreglumaður alvarlega. Nokkur dæmi séu um síðarnefndu bótaupphæðirnar. „Mjög stór hluti þessara mála gerast hér á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Gylfi. „Ég hef tilfinningu fyrir því að borgararnir séu að sýna meiri hörku gegn lögreglu og bregðist verr við. Meira sé um alvarlegra líkamstjón sem leiði til þess að bætur séu greiddar.“ Gylfi segir að enn sé ekki búið að gera upp öll þau bótamál lögreglumanna sem komu í kjölfar mótmæla vörubílstjóra við Rauðavatn og búsáhaldabyltingarinnar svonefndu. „Ég hef gert kröfu um bætur fyrir ellefu lögreglumenn sem slösuðust í búsáhaldabyltingunni og tvo sem slösuðust í átökum sem tengdust mótmælum vörubílstjóra. Þar af hafa fjórir verið metnir með varanlegan skaða, tveir vegna mótmæla við Alþingi og tveir í mótmælum vörubílstjóra. Tveimur málum er enn ólokið, sem tengjast mótmælunum við Alþingi.“ jss@frettabladid.is
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira