Um 800 milljónir til endurreisnar vegna eldgosanna 28. júní 2010 12:02 Eyjafjallajökull
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að veita 791,7 milljónir króna til endurreisnar og vegna neyðaraðgerða í kjölfar eldgosanna í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að styðja eigi við uppbyggingastarf á eldgosasvæðinu og treysti enn frekar á störf þeirra sem komið hafa að neyðaraðgerðum, öryggismálum og endurreisn í kjölfar hamfaranna. „Eldgosin hafa haft víðtæk áhrif á íslenskt samfélag sem og alþjóðlegar flugsamgöngur. Viðbrögð þeirra sem hlut eiga að máli hafa verið fumlaus, traust og vel skipulögð. Samstarf bæði innan og utan stjórnsýslunnar hefur verið til fyrirmyndar og sýnir glöggt styrkleika þjóðarinnar til að takast á við afleiðingar náttúruhamfara. Enn eru allir í viðbragðsstöðu og fylgjast áfram með þróuninni á svæðinu," segir í tilkynningunni. Bjargráðssjóður fær stærsta einstaka viðbótarframlagið, 190 milljónir króna, en heildarkostnaður sjóðsins vegna eldgosanna er metinn á 300 milljónir króna. Þá fá Landgræðslan, Vegagerðin, Veðurstofan, almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, löggæslan, Landhelgisgæslan, Rauði kross Íslands, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Jarðvísindastofnun Háskólans, Flugstoðir, heilbrigðisstofnanir og fleiri umtalsvert fé til að sinna störfum sínum í tengslum við eldgosin. Jafnframt samþykkti ríkisstjórnin að styðja við bakið á sveitarfélögum á eldgosasvæðinu m.a. vegna tímabundinna húsnæðisúrræða fyrir íbúa í Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Líklegt má telja að Viðlagatrygging bæti ýmsan tilfallandi kostnað sveitarfélaganna til að mynda vegna hreinsunar. Brýn verkefni á næstunni verða m.a. við framkvæmdir og lagfæringar á varnargörðum við Markarfljót og Svaðbælisá auk aðgerða við að hefta öskufok á svæðinu. Ríkisstjórnin fól fimm ráðuneytisstjórum að fara yfir allan kostnað sem tengja mætti neyðaraðgerðum á gossvæðinu í kjölfar eldgosanna. Fjárframlög til stofnana byggja á niðurstöðum þeirra og tillögum, sem taka mið af því hvaða kostnaður teljist óhjákvæmilegur vegna neyðarviðbragða og annarra nauðsynlegra aðgerða. Hópurinn starfar áfram þar sem ákveðna þætti þarf að skoða nánar á síðari stigum. Heildarkostnaðarmat vegna tjóns af völdum eldgosanna í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi liggur ekki endanlega fyrir en þó er komin nokkuð góð mynd á umfangið. Hluti kostnaðar af eldgosunum leggst á Viðlagatryggingu og Bjargráðasjóð sem, eins og að ofan er getið, fékk viðbótarframlag til starfsemi sinnar. Ólíkt kostnaðinum vegna jarðskjálftans árið 2008 þá liggur stærstur hluti kostnaðar ríkissjóðs nú hjá einstaka stofnunum. Við þau útgjöld ráða þær ekki án viðbótarfjárheimilda. Hins vegar skal nýta fjárheimildir ársins með forgangsröðun verkefna svo sem frekast er kostur. Mál er varða tjón einstaklinga eða tekjutap rekstraraðila fara til skoðunar hjá Viðlagatryggingu og Bjargráðasjóði. Á næstunni opnar almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra í samráði við ráðuneytin að nýju þjónustumiðstöð á eldgosasvæðinu til að samræma viðbrögð og úrlausn verkefna sem framundan eru í sumar og haust. Almannavarnadeild ræður verkefnisstjóra til að annast daglegan rekstur þjónustumiðstöðvarinnar.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira