Innlent

Tæplega 11% sinntu ekki öryggi barna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um 11% ökumanna gættu ekki að öryggi barnanna.
Um 11% ökumanna gættu ekki að öryggi barnanna.
Tæplega 11% barna voru í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti þegar Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg könnuðu öryggi barna í bílum í maí síðastliðnum. Könnunin var gerð við 75 leikskóla víða um land og var öryggisbúnaður 2660 barna skoðaður.

Þetta er nokkuð betri útkoma en í fyrra þegar rétt tæp 13% barna voru í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti. Ástandið er hins vegar mun betra en það var fyrir 10 árum síðan þegar 25% barna í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti.

Ökumaðurinn ber lögum samkvæmt fulla ábyrgð á að barn noti verndarbúnað. Ökumaður sem sinnir ekki þeirri skyldu má búast við að verða sektaður um 15 þúsund krónur og fá einn refsipunkt í ökuferilsskrá fyrir hvert barn sem er laust eða án viðeigandi öryggisbúnaðar í bílnum.

Könnun Umferðarstofu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar sýndi fram á að flestir foreldrar væru til fyrirmyndar við að gæta að öryggi barnanna. Hins vegar væru undantekningar. Til dæmis höfðu tvö börn verið sett saman í eitt öryggisbelti við einn leikskólann. Það getur haft mikla hættu í för með sér við árekstur. Nokkur tilfelli voru þar sem foreldri sat undir barni en viðkomandi virtist ekki gera sér grein fyrir því að miklar líkur eru á að barnið verði fyrir alvarlegum áverkum þegar þungi foreldrisins leggst á það við árekstur. Í mörgum tilfellum báru foreldrar því við að þeir væru fara svo stuttar vegalengdir.

Könnun sem þessi hefur verið framkvæmd hér á landi frá árinu 1996 og á svo víðtæk könnun sér ekki hliðstæðu í öðrum löndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×