Tæplega 11% sinntu ekki öryggi barna Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. júlí 2010 10:14 Um 11% ökumanna gættu ekki að öryggi barnanna.
Tæplega 11% barna voru í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti þegar Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg könnuðu öryggi barna í bílum í maí síðastliðnum. Könnunin var gerð við 75 leikskóla víða um land og var öryggisbúnaður 2660 barna skoðaður. Þetta er nokkuð betri útkoma en í fyrra þegar rétt tæp 13% barna voru í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti. Ástandið er hins vegar mun betra en það var fyrir 10 árum síðan þegar 25% barna í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti. Ökumaðurinn ber lögum samkvæmt fulla ábyrgð á að barn noti verndarbúnað. Ökumaður sem sinnir ekki þeirri skyldu má búast við að verða sektaður um 15 þúsund krónur og fá einn refsipunkt í ökuferilsskrá fyrir hvert barn sem er laust eða án viðeigandi öryggisbúnaðar í bílnum. Könnun Umferðarstofu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar sýndi fram á að flestir foreldrar væru til fyrirmyndar við að gæta að öryggi barnanna. Hins vegar væru undantekningar. Til dæmis höfðu tvö börn verið sett saman í eitt öryggisbelti við einn leikskólann. Það getur haft mikla hættu í för með sér við árekstur. Nokkur tilfelli voru þar sem foreldri sat undir barni en viðkomandi virtist ekki gera sér grein fyrir því að miklar líkur eru á að barnið verði fyrir alvarlegum áverkum þegar þungi foreldrisins leggst á það við árekstur. Í mörgum tilfellum báru foreldrar því við að þeir væru fara svo stuttar vegalengdir. Könnun sem þessi hefur verið framkvæmd hér á landi frá árinu 1996 og á svo víðtæk könnun sér ekki hliðstæðu í öðrum löndum.
Mest lesið Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Fleiri fréttir Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Færri krakkar á samfélagsmiðlum en fleiri vingast við gervigreind Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Sjá meira