Innlent

Þúsundir erlendra ferðamanna á leið til Ísafjarðar

Tæplega 6.250 ferðamenn koma til Ísafjarðar í júlí með skemmtiferðaskipum ef áætlanir standast, segir í frétt Bæjarins besta.

Von er á tæplega tvö þúsund ferðamönnum til Ísafjarðar með skemmtiferðaskipum í næstu viku og rúmlega 5.400 manns fram til mánaðarmóta.

Á sunnudag kemur skemmtiferðaskipið Ocean Countess en það er rúmlega 17.500 brúttótonn og siglir undir portúgölskum fána, segir í frétt Bæjarins besta.

Átta hundruð farþegar eru um borð. Á mánudag leggst Delphin að bryggju en það siglir undir fána Bahamas. Skipið er 16.250 tonn og ber 556 farþega. Á miðvikudag kemur síðan Princess Danae frá Panama sem er rúm 16.500 tonn og ber 500 farþega.

Spirit of Adventurer hafði boðað komu sína á miðvikudag en varð að afturkalla komu sína vegna bilunar. Princess Danae er svo aftur væntanlegt sunnudaginn 25. júlí.

Átta skip eru bókuð til Ísafjarðar til mánaðarmóta. Stærst þeirra er Maasdam, sem siglir undir hollenskum fána og er 55.400 tonn, því næst kemur Prinsedam sem er tæp 38.000 tonn og MV Ocean Princess er 30.200 tonn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×