Steinunn missir ekki svefn yfir áformum Jóns Ásgeirs 16. júlí 2010 07:00 Formaður slitastjórnar Glitnis óttast ekki málshöfðun Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem ætlar að krefjast kyrrsetningar á eignum hennar. „
Ég missi ekki svefn út af þessu," segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, um þau orð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar að hann hyggist höfða meiðyrðamál á hendur henni vegna meintra lyga í eiðsvörnum yfirlýsingum fyrir dómstólum. Fréttablaðið náði ekki tali af Jóni Ásgeiri í gær en í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 sagðist hann jafnframt ætla að krefjast kyrrsetningar á eignum Steinunnar hjá sýslumanninum í Reykjavík þar til niðurstaða fengist í meiðyrðamálið. „Þetta kemur svo sem ekki á óvart," segir Steinunn. „Það er greinilegt að hann er ósáttur við það sem við erum að gera en það eina sem ég er að gera er að sinna skyldum mínum í slitastjórn Glitnis við að grípa til þeirra aðgerða sem ég tel að séu nauðsynlegar. Honum er náttúrlega frjálst að gera það sem hann vill - ég kippi mér ekki upp við það." Aðspurð segist Steinunn ekki telja að hún hafi að neinu leyti farið yfir strikið í eiðsvörnum yfirlýsingum sínum fyrir dómi í London og New York. Henni virðist sem málið snúist fyrst og fremst um tölvupóst með yfirliti yfir innistæður Iceland Foods. „Og ég hef aldrei fullyrt að þessar innistæður hafi tilheyrt honum," segir hún. Jón Ásgeir sagðist í viðtali við Fréttablaðið í gær ætla að áfrýja alheimskyrrsetningu eigna sinna þrátt fyrir að dómari hafi hafnað beiðni hans um áfrýjun fyrir viku. „Mér skilst að hann geti óskað eftir áfrýjunarleyfi og það er síðan dómarans að ákveða hvort hann veitir það," segir Steinunn. „Dómarinn var hins vegar býsna skýr hvað þetta varðaði og það hefur ekkert nýtt komið fram sem ætti að breyta þeirri afstöðu. Þetta mál með þennan tölvupóst breytir engu í þessu samhengi." Spurð um kostnað slitastjórnarinnar við málaferlin segist Steinunn engar tölur geta gefið upp. „En það sem við höfum þegar endurheimt á grundvelli rannsóknar Kroll er að minnsta kosti tvöfalt það sem við höfum varið í rannsóknina og málaferlin," segir Steinunn. „Við teljum ljóst að það sé vel þess virði að eyða púðri í það að leitast við að endurheimta verðmæti og að okkur muni takast að endurheimta mun hærri fjárhæðir í gegnum þetta."
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Þúsundir hælisleitenda synt til Ceuta á nokkrum klukkustundum Erlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Sjá meira