Synjun styrkir samningsstöðuna 5. mars 2010 04:15
Það er nauðsynlegt að fella Icesave-lögin frá því í desemberlok úr gildi í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Við það styrkist samningsstaða Íslands. Þetta er mat Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins. „Fyrst voru menn að ræða málin á nýjum grunni en svo allt í einu kom tilboð sem grundvallaðist á gömlu samningunum. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að fella lögin úr gildi og losna þar með við þessa gömlu samninga," segir Sigmundur Davíð. Hann hefur fulla trú á að Bretar og Hollendingar verði áfram reiðubúnir til viðræðna eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna enda hafi á fyrri stigum verið rætt um að sérstök yfirlýsing þess efnis yrði gefin út. Sigmundur segir óformlegar viðræður samninganefndanna í London síðustu daga vera á forræði ríkisstjórnarinnar; stjórnarandstaðan hafi ekki lengur aðkomu að þeim. „Ég hef ekkert heyrt í dag [í gær] og raunar hefur stjórnarandstaðan verið lítið inni í þessum svokölluðu óformlegu viðræðum. Ég veit því ekkert um hvað er verið að tala," segir hann. Símafundir forystumanna stjórnmálaflokka með samninganefndinni hafi ekki verið haldnir í marga daga. „Fulltrúi stjórnarandstöðunnar í nefndinni hefur gert mönnum grein fyrir að þessar óformlegu viðræður séu ekki á vegum stjórnarandstöðunnar."-bþs
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Fleiri fréttir Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Sjá meira