Leiðrétting: Lögregla hvatti til kæru 30. nóvember 2010 14:43 Nauðgunin átti sér stað á Þjóðhátíð.
Vísir greindi frá því 27. október síðastliðinn að 22. ára gömul kona hefði verið lött til þess að kæra nauðgun af yfirmanni kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Björgvini Björgvinssyni. Konan lýsti reynslu sinni þar sem hún sagðist hafa orðið fyrir nauðgun í Vestmannaeyjum síðustu verslunarmannahelgi. Þegar hún hafi ætlað kæra árásina sagði hún í viðtali við Vísi að hún hefði fengið þau svör að það væri tímasóun að kæra málið í ljósi þess að hún sá aldrei gerandann. Vísir byggði fréttina á framburði konunnar sem lýsti tveggja manna tali við Björgvin. Hann neitar þessari lýsingu alfarið og hefur sýnt fréttamönnum Vísis gögn þar sem ferill málsins er rakinn nákvæmlega hjá lögreglunni. Þar kemur bersýnilega í ljós að málið var tekið mjög alvarlega og rannsókn þegar hrundið af stað. Þá var tvívegis haft samband við konuna eftir samtal hennar við Björgvin, og hún hvött til þess að kæra málið. Ennfremur var réttargæslumaður skipaður sem var þó aldrei kallaður á fund með stúlkunni þar sem hún hætti við að kæra. Í ljósi þess að kynferðisbrotadeild lögreglunnar leitaðist við að fá stúlkuna til þess að kæra, auk þess sem rannsókn var hafin á málinu, að viðbættri eindreginni neitun Björgvins um að samskiptum við stúlkuna sé rétt lýst af hennar hálfu, hefur Vísir ákveðið að draga fréttina til baka. Björgvin og aðrir aðilar tengdir málinu eru ennfremur beðnir afsökunar.
Mest lesið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Fleiri fréttir Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Karlarnir leiða að ósk kvennanna Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Sjá meira