G-bletturinn er til 6. janúar 2010 07:15 Sigríður Dögg og Jóna Ingibjörg segja rannsóknina ekki afsanna tilvist G-blettsins og telja hann enn vera til. Fréttablaðið/gva
Niðurstaða rannsóknar vísindamanna í King's College í London á hinum dularfulla G-bletti hefur vakið mikla athygli. Ekki eru allir á eitt sáttir við hana. Um 1.800 konur, allt tvíburar, á aldrinum 23 til 83 ára tóku þátt í könnuninni. Eineggja tvíburar deila sama genamynstri og því töldu vísindamenn að ef annar tvíburanna teldi sig vera með G-blettinn að þá mundi systir hennar gefa sama svar, en sú var ekki raunin og þótti það sýna fram á að bletturinn væri einungis huglægur. Sigríður Dögg Arnardóttir kynlífsfræðingur telur rannsóknina varhugaverða. „Svona rannsóknir koma reglulega upp. Konur hafa lengi greint frá slíkum bletti sjálfar og lýst sáðláti en þar sem læknasamfélagið fann ekki umræddan blett þá var hugmyndin afskrifuð og mér sýnist þetta vera svipað dæmi. Það er kjánalegt af þeim sem leiða rannsóknina að koma fram og segja G-blettinn hugarburð kvenna bara af því að þeir hafa ekki fundið hann. Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að það eru einfaldlega ekki allar konur með G-blett og mér finnst það mun líklegra. En ég hvet þær konur sem telja sig hafa fundið blettinn til að halda áfram að örva hann og hafa gaman af." Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, tekur undir orð Sigríðar Daggar og segir þessa „ekki-frétt" undirstrika hvað almenningur og fjölmiðlar virðast kokgleypa það sem vísindamenn segja, eða segja ekki. „Eftir að hafa skoðað það sem hægt er að finna um þessa rannsókn get ég strax sagt að rannsóknin hvorki sannar né afsannar tilvist G-blettsins. Ég tel að þessi blessaði blettur eða svæði sé enn til, auðvitað hefur hann ekki gufað upp. G-blettinum hafa hins vegar verið eignaðir ýmsir eiginleikar í tímans rás sem ekki standast og það er það sem vísindamennirnir við King's College eru í rauninni að segja. Til dæmis hefur honum verið eignaður sá eiginleiki að vera óvenjunæmt taugabúnt inni í leggöngunum og að allar konur ættu að finna það. Það er ekki svo. Hjá sumum konum eykur örvun á þetta svæði kynferðislega nautn, aðrar merkja engin áhrif og enn öðrum finnst örvun á G-blettinn beinlínis vond eða óþægileg. En ég get ekki tekið undir það að G-bletturinn sé eitthvað sem konur hafa verið að ímynda sér," segir Jóna Ingibjörg. Hún segir rannsóknina einfaldlega staðfesta það að kynsvörun kvenna er margbreytileg og það sé af hinu góða. - sm
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Sjá meira